Jújú 4. er peeping Tom og 3. er Tommi togvagn
Þú ert á réttri leið en rangur Tómas í 3.
Hvað segir dómarinn? telst gátan nægjanlega leyst?
Skemmtilegur þráður, hér er tilraun til að losa um áralanga uppsöfnun ryðs og ryks
Oft á Mississippi sigldi
Sjá, hans kviknar pera
Hélt sig geta ef gjarnan vildi
góndi á dömu bera
neinei glápti enginn á sjónvarpið í gær?
Jú ÉG kom þar víst á skjáinn.
Góður!!
ifil bblúgroZ
p.s. Ég var náttúrulega búinn að fatta þessa myndgátu langt á undan vesslingunum
Tvö skot kannski alveg út í loftið
Znati: Sýra?
Barbi: Sauður?
Z.
Uggi
veiðiuggi
ugga að sér
Uggi
Uss, alltof auðvelt hjá mér
Barbi á kollgátuna en samt ætla ég að leyfa mér að pilla í þetta.
Rétt svar er Ugga
Veiðimaður vill sjá ugga
að ugga ekki að ...
Datt í hug blý en það er víst ekki kvenkyns :(
Önnur braghenda:
Víst að slíka veiðimaður vill helst sjá
Að hættumerkjum gleyma að gá
Gefa stráksa nafnið má
Flíka skal ei fláræði
flokkum misvel líkar
Vilja ekki vandræði
vofur pólitíkar
Var þetta ekki síðasta innleggið sem hélt keðjunni?
Pólitíkarsyni sá
sinni kök' að skara
Skítlegt eðli skoð ...
Lostaskortsvandann í denn
drengir góðir leystu
Losuðu þá marga menn
við mæðuþrungin eistu
Nú, nafni var á undan en er þetta ekki svindl? Baaaarbiiii!
Gaman bæði og gæfu hér
nú gefi jólin
Skemmta kallinn skaltu þér
hvar skín ei sólin
Serða má ég sjálfsagt enn
svanna minna drauma
En sundlauganna sora menn
sína 'draga tauma'
Parasetamólið myl
minnar vegna þynnku
Síðar eflaust varna vil
-Viagra með- linku
Nei, nei, nei.
Leirbullur Baggalútíu taki sér nú tak og lypti oki því af sér sem vísnaþrautir þessar eru. Ellegar mun þeim vís ævarandi skömm í viðurvist hins mikla Zorglúbb
Hlær illkvitnislega
...
Gólfinu títt gengur á
gera 'Bagglýtingar'
Tapi liðið - tryllist þá
tregan vökva þvingar
Bulla?
Vélarstimpill, bullukollar, fótboltabullur, bullsjóða?
Einnig þetta áður var - ok (og)
allra ...
Gólfinu títt gengur á
gera 'Bagglýtingar'
Tapi liðið - tryllist þá
tregan vökva þvingar
Bulla?
Vélarstimpill, bullukollar, fótboltabullur, bullsjóða?
Enter þú ert znillingur
1. Bulla = ...
Nei, nei, nei.
Leirbullur Baggalútíu taki sér nú tak og lypti oki því af sér sem vísnaþrautir þessar eru. Ellegar mun þeim vís ævarandi skömm í viðurvist hins mikla Zorglúbb
Hlær illkvitnislega
...
Zorglúbb er með þessar tvær gátur:
Gólfinu títt gengur á
gera 'Bagglýtingar'
Tapi liðið - tryllist þá
tregan vökva þvingar
Einnig þetta áður var,
allra fyrsta stig.
Til rjúpna stundum rölti ...
Heyrðu Glúbbi er þetta "skot"?
Stelst til að líta inn í matarhléi
Ekki skot, nú vill svo til að ég er með 2 óleystar gátur hér inni, vinsamlegast tilgreinið hvora þið eruð að reyna að leysa.
-Z