Ég kasta hér með fram fyrripart um hann Palla sem er óðum að verða einn í heiminum þarna upp í Efstaleiti.
Grætur hann nú gæðinginn
gullvagninn hann Audi
Ætli „Áttu rétt á slysabótum?“ eigi við um þá sem komu undir fyrir slysni?
Ertu að meina að ég sé ekki jafn fjallmyndarlegur?
Hvur andskotinn og baðvatnið hans! Maður er í smá meðfer...sumarleyfi og þegar maður kemur aftur er búið að höggva ásýnd manns í heilt fjall!
Þetta hlýtur að kalla á ærlegt fyllerí gásir og melir.
...
Jæja, nýtist sálartetrið þér eitthvað Goggur?
Allt eftir bókinni Vamban? Nostradamusarspádómi einhverjum þá?
Já hann hringir í mig reglulega að handan með íþróttaúrslit. Ég er löngu hættur að taka mark á kallinum eftir þetta.
Og hvar var Ásgeir Sigurvinsson, ég bara spyr!?
Hann var að æfa sveifluna.
Dauðariðill hefst í dag
drengir takast á
Úr mikilmanna miðjuslag
mörkin koma þá
Þetta verður allt eftir bókinni. Fransmenn og Ítalir vinna.
Böstar múv
Tilboð Goggsins er of gott til að hafna. Þú færð sálina aftur.
Afhendir Goggnum sálina á afar formlegan hátt í viðurvist skrifstofustjóra Landbúnaðarráðuneytisins, prests, yfirlögreglustjóra, Lalla ...
Rétt er það. Vamban skal það vera hvernig sem með það er farið.
En hvað sálina varðar þá vil ég eitthvað í staðinn. Kannski auglýsingu fyrir Admiral á tunglið? Það væri ekki verra.
Hvað fæ ég í staðinn? Brjóstmynd af Ernest Borgnine? Heildarsafn Páfans af verkum Barbara Streisand? 3G síma Júdasar? Það verður að vera eitthvað veglegt og yfirgengilegt með eindæmum!