— GESTAPÓ —
     1, 2, 3 ... 26, 27, 28  

Plönturækt ég rjátla við
í reykingar að nota.
Fjármagnað er framtakið
sem -fyrirtæki sprota.

Akrabreiðum ægifögrum
Afghanistan skartar

Upp að vakna er þeim raun
sem eiga góða drauma.
En plagað getur pínku baun
prinsessuna auma.

Bráðum vorar, Þórdís þarf
þá að sveifla ljáum.
Gróir vel í grennd við Hvarf
gnægð er þar af stráum ...

Illt er víst í efni nú
ekki vill það skána.
Hvert fór Lóa litla á Brú,
létt með hýra brána.

Mjólkurbílnum Bjössi ók
með brennivín í pela

InnleggKveðist Á - Smali - 14/1/09 10:36

Hinna æðri afla geng
ofurmenna í liði.
Gatslitnum ég g- á streng
í Gaza kem á friði.

InnleggKveðist Á - Smali - 29/12/08 00:44

Guðfinns hef ég geðsjúkt kar
Í gjaldþrot látið reka
Og svo skjótt mér veitist var
Ég vendi burt, á fleka.

Pinu ögn af góðu Gini
gömul kona færði mér.
Botn, frá Lappa Lúðasyni
leyndist nokkuð góður hér

þúsund hef ég þrautir reynt
en þessi er verri öðrum

Úldin skata, yfrið kæst,
ýmsum þykir matur.
Djöfuls ógeð, djísöss kræst,
daunninn ekki úr fötum næst.
Inn skal þetta lokað, læst
legg ég á það hatur.

Ýmiskonar ómeti
oft er lofi hlaðið.

InnleggKveðist Á - Smali - 23/12/08 11:53

Hlewagesti hlýnar ögn
hland í buxur streymir
Vestfirska hann þráir þögn
þetta greyið dreymir.

Í skóla ei ég skemmti mér
því sköss að kenna eru
mér um allt sem miður fer
og meira í þá veru.

Sem íslendingur er ég þó
orðinn slíku vanur.

InnleggHver orti? - Smali - 22/5/08 21:15

Margt hef ég vont gert um dagana en nú særir þú mig hlewagastiR!

InnleggKveðist Á - Smali - 27/11/07 19:49

Tekur David tóbakshorn
og treður stíft í nefið
kynnt sér hefur fræðin forn;
það fælir burtu kvefið.

Fer nú andinn ögn í ró
allir pokar tæmdir
Burt frá gömlu Gestapó
góðir drengir flæmdir.

Fyrsta æskuminning mín
má að sönnu teljast

InnleggKveðist Á - Smali - 7/12/06 09:41

Dyljast mér þau drottins verk
sem dyggir prestar lofa
Vínið mína vætir kverk
nú vil ég fara að sofa.

InnleggHver orti? - Smali - 14/10/06 21:30

Upprifinn hefur rétt fyrir sér. Sjöleitið, sá öndvegisyrðingur.

InnleggKveðist Á - Smali - 14/10/06 20:34

Svona hef ég svaka oft
sviða í mínum kaunum
læknar þetta Lara Croft
og lítil dós af baunum.

fylgið keðju karlar nú
komið inn réttri línu
Ég fékk er horfði á Betty Blue
býsna góða pínu.

Þetta botnar þú nú létt
það erekki málið

InnleggHver orti? - Smali - 14/10/06 20:22

Nei, það er frekar langt síðan þessi vísa kom a.m.k. 2 ár held ég. Hann er grænn á lit eins og ég en hefur tekist að halda virðingu sinni alla tíð hér á Gestapó -- og þrengist þar með hringurinn allve ...

InnleggHver orti? - Smali - 14/10/06 18:44

Ekki Smali og Ekki Hlebbi hommi. Þessi er frekar sjaldan á Gestapó held ég, eitthvað svipað og ég en ég hef aldrei séð hann láta frá sér slæma vísu.

     1, 2, 3 ... 26, 27, 28  
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: