— GESTAPÓ —
     1, 2, 3, 4, 5, 6, 7  
InnleggKveðist Á - Lyra - 18/12/07 14:54

Sturta í mig stórum bjór
steggur mættur aftur.
Lyra eftir fríið frjór
frum- er leirsins kraftur.

InnleggLimruþráður. - Lyra - 6/10/05 15:15

Margir á djamminu daðra
við dömur og stundum við aðra.
Þú veist hvað ég meina:
oft hitti ég eina
stúlku, sem er strákur með farða.
Klórar sér í höfðinu

Upprifinn er seggur sæll
sætur meður höttinn
Skít- er fráleitt halur -hæll
hair- með fínan -köttinn.

Rekkjuvoðum undir er
oft á tíðum gaman,
Þar Gunna er með brjóstin ber
og Bölverk einum saman.

Drekkum halir dýran mjöð
dettum svalir íða

Höldum partí, prófum hass,
pabbi þarf að vinna
Bestur finnst mér rjóður rass
með reðinn milli kinna.

Kynvillan er kostuleg
kann á henni skilin:

InnleggEnn er kveðist á - Lyra - 24/8/05 12:37

Fitukeppi fáa sé
á fínum síðum Bagga-
lútsins. Bara spaug og spé
og sportalega kagga.

http://www.baggalutur.is/nyr/augl_trabant.jpg

InnleggEnn er kveðist á - Lyra - 22/8/05 14:58

Hlæjandi hlewagastiR:
hrikalegt.
Ljóðsins erum í formi fastir:
fáránlegt.

Haldið þráðinn þorskhausar
þúsundfætlur gætu betur.
Sendingarnar laflausar
frá litla Eið í allan vetur.

Kunni margar klámvísur
kappinn firnagraði.

Þett´er orðið þokkalegt.
Þreyttur fer í háttinn.
Alveg óásættanlegt:
engan fæ ég dráttinn.

Gefðu mér nú fínan fæv
frekar háan vil.

Fjölmiðlun er fallvölt iðja
Faðir vor, nú skulum biðja
Ólafur er grís og gyðja
glaður ég ætla hann að styðja.

Pixies voru pottþéttir
í penum Kaplakrika.

InnleggEnn er kveðist á - Lyra - 10/5/04 13:22

Með lagið himneskt við höldum
og hyggjum við náum þar völdum:
Í garðinum Mikla
mjög reynum að sprikla
Með Jónsa á kúpunn' á kvöldum.

Skipin baula í blindaþoku
og beljur svara í haga.
Frá Sóma étum langa loku
lítt sem fyllir maga.

Neðanjarðarlestalokan
er lystugust af öllum.

Afi syngur "child in time"
tár um hvarma fellur.
Drekkur ákaft lipur læm
lofaður sé smellur.

Mökkur yfir vatni var
á vélarhausaplötu.

InnleggLimrur - Lyra - 16/2/04 14:48

Í limrunum háll þykir Haraldur
þó hann sé allnokkuð við aldur.
En síðan reglurnar setur
svo ég get ekki betur:
Þett' er fráleitur sérnafnafaraldur.

InnleggEnn er kveðist á - Lyra - 6/2/04 08:42

Eyjapeyjar pottþéttir
pysjur fíla og stökur.
Hornfirðingar hornréttir
humar nota á bökur.

Gríðarlega er gott að sofa
gert það hef ég vel í nótt.
Dreymdi kátur Annan Kofa
kyrja limrur títt og ótt.

Áttavilltir andfætlingar
allir fagna sumri nú.

InnleggFimmskeytlur - Lyra - 4/2/04 09:55

Bílataugin reynist römm
ryðsins Lada geymir gen.
Ef þig fyllir Skódi skömm
skaltu aka á nýjum Ben-
z

Kirkjur landsins lúnar eru
og léleg sætanýting.
Því ekkert sést af brjósti beru
né búsi á þeim mítíng.

Kaþólskan er kostuleg:
karlægir menn þar rúla.

     1, 2, 3, 4, 5, 6, 7  
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: