Hugsaðu um það stutta stund
stubburinn minn góði:
Ef að þú sýður haltan hund
hrærðu þá vel í blóði.
Blóðhundar með bláa ól
bíða nú í röðum.
Enter Sandman - allt er strand
aumt er bland í grúti.
Allt til fjandans, bál og brand
Bagga - grandar - lúti.
"Hvín og glampar í lofti ljós
löng af verður rákin."
þar lortur bærðist - líkt og rós
ljót var páfaskákin.
Miðlungshægðir hafa lágt
hljómþíðar og slakar.
Heggur niður Kofi Annan
61
borar í nefið
Ég er að spá í að skella mér á Árshátíðina, hvað með þig?
Fær sér í nefið
Ég var búinn að gleyma þessum æðislega þræði. Kærar þakkir fyrir að benda mér aftur á hann, Jóki!
xTxTxTxTxT
Ég hlýt að fá þakkir líka.
Eftirtektarverður þráður.
Ef pontan var tóm og útséð með að redda sér nýrri, þá var maður gjörsamlega í pontinu.
Brauð með kæfu.
Til hamingju með rafmælið.
Gefur rafmælisbarninu í nefið
Þakka ykkur kærlega fyrir kæru vinir, ég vissi að það borgaði sig að mæta í eigið rafmælisboð.
Býr til langa neftóbaksrönd á borðið og dreifir rörum á línuna.
Mildi tópaks glepur glóp
gleði sópar kvefið.
Eymsli skóp ég á mig hljóp
aumt er gróparnefið.
Tópak er hér í merkingunni tóbak, fyrir innrímið.
Hallar undir öðrum fæti ofurlítið.
Þetta finn ég bara'í bítið
bölvað gólfið er svo skrítið.
Ira Murks fær rafmæliskveðjur. færir Ira þá alstærstu silfurpontu sem sögur fara af
Fær sér allhressilega í nefið
Sjöhundruð þúsund þakkir, Kargur.
Svo fær Enter líka þakkir. Takk fyrir blóm ...