Ég meina það! Það er algert lágmark. Ég fer ekki fram á meira. Maður ætti í raun ekki að þurfa að hafa orð á því svo sjálfsagt þykir það. Sko, það er ekki eins og maður fari fram á mikið. Mér finnst algert lágmark og grunnréttindi mín sem áhugamanns um ofdrykkju að sé ég á vappi, ofurölvi, fjúki ég ekki helmökkaður eitthvað út í hafsauga.
Hvað í gallsúrum og dauðhreinsuðum andskotanum á þetta að þýða!?
Það leiðinlega í þessum aðstæðum er að vindurinn virðist ekkert tengjast áfengislegu ástandi þolandans. En vindþol er engu að síður lítið í áfengu ástandi, ég styð þetta málefni heilshugar!
Ég fer ekki fram á meira en að skála á mánudegi!
Skál stórmyndarlegi stálmaðurinn okkar allra!
Hvað í gallsúrum símasnúrum á það að þýða að skála ekki við mig á þriðjudegi?
Skál grallarinn þinn.