— GESTAPÓ —
Dr. Gottfriedsen
Nýgræðingur.
Gagnrýni - 10/12/03
Fegrunaraðgerð

Fágun og glæsileiki

Fegrunaraðgerð sú er Baggalútur gengs nú undir er til fyrirmyndar. Skurðarörin eru óðum að hverfa og fram brýst glæsilegt útlit sem hæfir fáguðu innihaldi Baggalúts vel.
Nú er nýja útlitið aðeins sýnilegt á Gestapó og þá er bara að bíða og sjá með framhaldið, grand opnunina.

Eftirvænting mín er mikil, svo er víst. Takk fyrir mig.

   (2 af 3)  
Dr. Gottfriedsen:
  • Fæðing hér: 28/3/04 01:04
  • Síðast á ferli: 11/6/05 19:05
  • Innlegg: 0
Eðli:
Dr. Alois Florian Gottfriedsen fræðimaður og fyrirsæta.
Fræðasvið:
Öll nema konur.
Æviágrip:
Dr. Alois Florian Gottfriedsen fæddist í Sviss og er sonur Maju bíflugu og blaðlúsarinnar Ralph Gottfriedsen. Þau lögðust í mikla drykkju og saurlífi eftir að hafa tapað málaferlum varðandi teiknimynd um líf Maju. Óregla foreldra varð til þess að Alois var fyrir misgáning sendur í grunnskóla öðru sinni. Í seinna skiptið dúxaði hann og í kjölfarið var leið hans á menntabrautinni greið. Alois hélt til Afríku þar sem hann gekk í hina ýmsu háskóla. Hann er m.a. doktor í mörgum evrópskum málum frá Chad University og stóðst með prýði. Einnig lærði hann leirhúsasmíði og þrælakaupmennsku í University of Burundi svo fátt eitt sé nefnt. Hann hefur unnið við ýmsar rannsóknir og skýrði heimsbyggðinni t.d. frá því að "kengúrur" eru einungis auglýsingabrella ástralskra ferðamálayfirvalda. Dr. Gottfriedsen hefur búið á Íslandi í nokkur ár og kennir svartholafræði í reykvískum leikskólum.