Þvottapoki er aðgangs- og kröfuharður spyrill lífsins.
Fræðasvið:
M.A. próf í getnaðarfræðum og kvöldnámskeið í leðurvinnslu.
Æviágrip:
Eftir margra ára vinnu við sjálfboðastörf í Sómalíu, píanónótnaprófarkalestur og lemúraræktun í Nýja-Sjálandi, hefur mannréttindasinninn Þvottapoki Aðgangsharður loksins snúið aftur til Íslands og er nú með spjallþáttinn Klessukvöld. Um leið og aðilar fást til að framleiða þáttinn munu landsmenn komast í kynni við Þvottapoka.