Nú keppast menn við að tjá sig um nýjustu afurð æringjans Mels Gibsonar og er sennilegast borið í bakkafullan lækinn með einni höndinni enn upp á móti hinum.
Gyðingarnir ku víst vera óskaplega sárir yfir því að Mel og faðir hans Gib séu að grafa upp gamlar áyrðingar um að dauði Jesúar Jósepssonar hafi verið þeim að kenna; þeir hafi beinlínis staðið fyrir því að hann var strengdur á kross. Um það má eflaust þrátta mikið, en hafa kristnir menn og gyðingar einhvern tímann íhugað hvað hefði gerst ef Jesús þessi hefði ekki verið strengdur á kross, hverjir svo sem stóðu að þeim óskunda.
Þætti Jesús eitthvað merkilegur ef hann hefði ekki dáið á krossinum, heldur eldgamall, útbrunninn og afdankaður kraftaverkamaður í litlum næturklúbbi í Jerúsalem? Er það ekki einmitt píslarganga Jesúsar sem gerir hann að þeim frelsara sem kristnir menn sjá í honum? Er hann ekki sagður hafa dáið fyrir syndir mannanna? Ætli Elvis Presley, Cory Bennett, Birgitta Haukdal, Jack Kennedy og John Lennon væru sveipuð jafn miklum dýrðarljóma í dag ef þau væru enn á lífi? Dauðinn, þó ótímabær hafi verið í þeirra tilviki og átakanlegur, og hvernig hann bar að, á sannanlega sinn þátt í arfleifð þessa fólks og sama held ég að gildi um Jesús Kr. Jósepsson.
Ég held að tími sé kominn til að hætta að rífast um þetta eldgamla sakamál. Gyðingar sem uppi eru í dag þurfa að mínu viti ekkert að skammast sín fyrir þetta, þó svo að margir þeirra trúi á og lifi eftir sömu kennisetningum og þeir sem grönduðu Jesúsi.
Hana