Já, kjellingar fá einga stjörnu hjá mjer
Skrapp út á "lífið" í gærkveldi og sá fult af fullum kjellingum. Mikið öldungis voru þær illa til hafðar og óárennilegar. Alls ó ísmegilegar og ófrínar þessar brussur. Segi nú ekki annað. BRUSSUR! Sjálfur var jeg jú vitanlega skolli flottur eins og alltaf en þó varla svo mikið við skál, heyr á eindæmi. En öngva sá jeg þarna úti á "lífinu" neina almennilega kjellingu. Hvílíkt og annað eins rusl. Huhh!
Nú vill jeg sjá hvort einhver ykkar geti getið sjer til um hvar í skollanum jeg var, fíflin ykkar.
Þú hefur bara ekki verið nógu fullur, þessar kjellingar líta bara þokkalega út ef maður er kominn passlega á peruna.
Þú hlýtur að hafa verið á þingi ÍÚKMÁ (Íslenskra Útjaskaðra Kvenna Með Áfengisvandamál)
Issss.... Þú ert bindur. Íslenskt kvennfólk er upp til hópa gullfallegt. Eða voru þarna bara útjaskaðar kanamellur?
Kannski hundinginn hafi villst inn á Kistuna þar sem Halli Austmann býr með gömlu kellingunum.
Þetta álit Hundingjans er ekki með öllu galið. Á mig sækir sú hugsun, æ oftar er ég fer á lífið, að það er sem kvenfólk, sumhvert, keppist um það að klæðast í sem hallærislegust föt. Kannski kem ég til með að móðga einhvurja konuna sem sækir Gestapó en málið er grafalvarlegt.
Það er náttúrulega engin hemja að konur klæðist ljósgrænum sokkabuxum í stíl við bleika skó, það er bæði bara ljótt, ansalegt og ætti að vera bannað með lögum. Skótau það sem sumt kvenfólk hefur á fótum er vægast sagt skelfilegt. Það er engu líkara en að þær konur hafi bara farið upp í skáp hjá ömmu sinni, fundið þar gamla handtösku og sniðið úr þeim sinn skóinn hvorn. Útkoman er sú að þær sem skrýðast þessum skóm verða óendanlega álappalegar.
Held ég fari ekki lengra í þessari útlistun á klæðaburði sumra kvenna nú til dags, enda rétt kominn upp fyrir hné og eflaust þegar búinn að særa mýmarga konuna og stúlkuna.
Góðar stundir.
Annars er kvenfólk hér á Íslandi í heildina með eindæmum fallegt.