Djöfuls hræsnin er að kaffæra okkar brjóstvit. Eggbúa sauðir og nöldrarar!
Ágæti lesandi.
Langar mig að leggja fram alveg nýjan vinkil á þessari hvimleiðu spurningu "hvort veiða eigi hvali"
Jeg segi að á meðan við ökum eiturspúandi bíl druslum um allt, reykjum, drekkum og göngum yfirleitt illa um okkar nánasta nágrenni eigum við vitanlega að skjóta hval. Það ætti í raun ekki að vera neitt nöldursefni.
Við erum hluti af heildinni. Öllum heiminum. Og að röfla um að vernda hvalinn hjá okkur á meðan við segjum ekkert við hvala drápi amríkana, jappsa og australa er ekkert annað en tvöfelldni og hræsni. Dæmigert fyrir náttúruverndar nörda og aðra Nasista.
Við veiðum allt annað. Alla flóruna, upp að þessum feytu ljótu hlussum. En hlussur verða þeir ekki mikið lengur reyndar, sökum vannæringar. Svo eru kaupskipin, sem sigla til Júrópu með loðnumjölið, að sigla á þessi reköld. Það er orðið svo krökt af þessum ófjenaði.
En Loðnan er, VAR undirstaða flórunnar að miklu leyti. Nú er hún bara óvart búin. Upp urin þökk sje krakka fávitunum í Hafró.
Skíðis hvalir jeta reyndar ekki Loðnu. En hann jetur allt frá henni skiljiði. Fíflin ykkar! Og allt jafnvægi er svín raskað af OKKAR sökum. Svo JÁ! Skjótum þá!
Þó ekki væri til annars en að vera sjálfum okkur fullkomlega samkvæm.
Hræsnarar!
Hundingi, það er ekki alveg sanngjarnt að kenna Hjalla og félögum á Hafró um hlýnun sjávar. En auðvitað eigum við að hefja hvalveiðar án frekari bollalegginga.
Þó ég hafi borðað kvalkjöt finnst mér það vera svo mikið vesen að það ætti að banna allar kvalveiðar alfarið. Það er ekkert að hvölunum, vandinn er græðgi mannanna. Hvalir hafa sál eins og allar aðrar manneskjur og allt sem lifir. Meira að segja heilu sólkerfin geta haft sál, jafnvel vetrarbrautir og okkar eigin alheimur. Og hvur veit nema að hvali og höfrunga sé að finna á öðrum reikistjörnum.