Krúttin mín.
Jeg elskykkur.
Sullum bullu súllurnar mínar.
Sjaldan hundi sómar sjer.
Því er ver.
Þetta sálmur ekki er.
Smjer.
Jeg er svo ósköp ánægður með ykkur.
Þið eruð yndisleg. Líkt og lygin ein.
Megi hinn sanni jóla andi strjúka kynnar ykkar.
Megi friður og ró fylla hugi ykkar.
Megi angur og rok bíða úti um sinn.
Vinur minn.
Megi ljós ylja hjörtu ykkar.
Megi skylningur umlykja huga ykkar.
Megi fólk ykkar friðinn finna.
Ekki minna.
Megi væntumþykjan heimsækja heimili þitt.
Megi steikurnar renna ljúft, Ó shit.
Megi mjúk vera bólin.
JÓLIN!
hundi.
Sólin fer að hækka á lofti. En svo lækkar hún aftur og svo hækkar hún aftur og svo framvegis.
Er ekki hægt að festa þetta drasl svo maður þurfi ekki að upplifa þessa óreglu?