Flottir!
Hjálmar eru flottir. Þursaflokkur nútímans þarna á ferðinni. Verst þykir mjer þó að þeir (augnablik... skál) skulu koma fram í þætti Grísla Marteins, Laugardagskveld með... tekinn upp á Fimmtudegi. Alger hörmung það á ferðinni. Gísli, vertu heima hjá þjer!
Já ég er sammála þér Hundingi... ég dýrka þá!!
Ég keypti diskinn um daginn þegar ég fór óvart í Skífuna. Það var verið að spila hann í græjum verslunarinnar og ég féll alveg kylliflöt. Keypti diskinn með það sama og er búin að nauðga honum síðan þá!
Hundingi er frábær náungi og öldungis ótrúlega fjöllyndur fjelagi í vel flestu sem við kemur samfjelagi mannana...
Jeg held við ættum stundum
að hlusta aðeins betur
á hugrenningar þeirra
sem erfa skulu land...
Hjálmar eru flottir. Á því leikur enginn vafi.
Þó þykir mér fulldjúpt í árinni tekið að líkja þeim við Þursaflokkinn - ég myndi segja að þeir séu álíka kærkomin viðbót við tónlistarflóruna einsog sá ágæti flokkur var á sínum tíma.
Nútíminn er trunta.
Alveg merkilegt hvað þáttastjórnendur í gegnum tíðina hafa verið þreytandi... maður tórir yfir þessu fyrir góða gesti á stöku stundum
Annars er Gísli ekkert alvondur... hann er bara þáttastjórnandi og þar af leiðandi þreytandi (uppfylling á milli atriða). Af hverju ekki bara að fá fólk til að troða upp og láta vélina rúlla :) :þ æjæja
Hjálmar eru afspyrnugott band. Ég get þó ekki þolað söngvarann. Það getur verið verulega kúl að syngja raggý svolítið "off", en þessi er á löngum köflum einfaldlega falskur. Þarna á milli er fín lína, en hann fer í öllu falli verulega í taugarnar á mér.
Að því ber þó að gæta, ágæta fífl, að umræddur söngvari semur megnið af lögum hljómsveitarinnar og þegar um er að ræða tónlist sem ekki er gerð eftir uppskrift Einars Bárðarsonar þá eru menn kannski ekkert að fá Rósinkrans eða Bó til að syngja þetta fyrir sig. Mark Knopler, Bob Dylan eða Tom Waits eru kannski ekki neinir Brús Dikkinsonar en það kom sjálfsagt aldrei til greina að láta einhverja aðra gaula fyrir þá. Ég virði þó þínar skoðanir en einhverjir virðast þó vel við una:-) Ps, Ég þurfti töluvert að hafa fyrir því að búa til þennann broskarl.