Því sem við kemur að dífa höndunum í kalt vatn.
Í því ágæta riti Fréttablaðinu í dag, er grein um garðrækt. Því miður er eingin(n) skrifuð(aður) fyrir vitleysunni.
Þarna er verið að segja fólki hvernig á að búa garðinn fyrir veturinn.
Í fyrsta lagi, á að hreinsa allt úr beðunum. Haustlaufin geta borið með sér sjúkdóma og þess háttar fásinna og vitleysa.
Lauf og drasl einmitt hlífa gróðrinum sem liggur undir. Því meiri lauf í beðunum, því betra.
Í öðru lagi segir greinin, að best er að vökva beðin alveg á kaf.
Hvílík fáfræði! Að segja að trén þurfi að liggja á kaf í vatni í frostinu.
Í þriðja lagi tekur greinin alveg steininn úr, með að ráðleggja fólki að bera á áburð. Án þess að nefna hvort átt er við tilbúinn eða húsdýraáburð.
Ég er öldungis gáttaður á besservissbjánaháttinum!
Gætum háttsemi félagar. Ég vil ekki svona lagað á minni síðu. Það er nóg að fótbrjóta það!
Hverslags í öldungis ósköpunum. Það er vandkvæðum bundið að halda nafnbótinni Tossi. Ég varð að eyða heilu félagsriti til að standa undir nafni!