Ég las í gegnum texta Mugison - Stingum af - og áttaði mig á því að þetta er ekki auðskilinn texti.
Það er andvökubjart
himinn - kvöldsólarskart,
finnum læk, litla laut,
tínum grös, sjóðum graut
Finnum göldróttan hval
og fyndinn sel í smá dal
lækjarnið, lítinn foss,
skeinusár, mömmukoss
stingum af - í spegilsléttan fjörð
stingum af - smá fjölskylduhjörð
senn fjúka barnaár
upp í vind, út á sjó
verðmæt gleðitár,
- elliró, elliró
hoppum út í bláinn,
kveðjum stress og skjáinn,
syngjum lag, spilum spil,
þá er gott að vera til
tínum skeljar, fjallagrös,
látum pabba blása úr nös,
við grjótahól í feluleik,
á hleðslu lambasteik,
stingum af - í spegilsléttan fjörð
stingum af - smá fjölskylduhjörð
senn fjúka barnaár
upp í vind, út á sjó
verðmæt gleðitár,
- elliró, elliró
Hér er síðan greining á ljóðinu:
Það er andvökubjart • Ég býst við að þetta sé þá við sumarsólstöður
himinn - kvöldsólarskart, • Við sumarsólstöður þá er hæpið að tala um kvöldsól enda sólin átakanlega hátt á lofti allan sólarhringinn.
finnum læk, litla laut, • Að ætla sér að finna læk og laut (eða læ og lau) í sömu andrá er ekki alveg einfalt.
tínum grös, sjóðum graut • Jú, grös... en hvaðan kom þessi grautur (grau-ur)í lautinni við lækinn með grösum?
Finnum göldróttan hval • Og allt í einu erum við komin með hval. Tengist hann læknum við lautina þar sem voru einhver grös og einhver grautur?
og fyndinn sel í smá dal • Já, það er sannarlega fyndið að finna sel í dal - enda eru selir annálaðir grínarar inn til dala.
lækjarnið, lítinn foss, • Selurinn þarf læk og foss... jah eða meira beljandi stórfljót og öskrandi foss.
skeinusár, mömmukoss • Það mætti ætla að við það að eiga við göldróttan hval í einhverri aumingjalegri laut og spaugsaman sel lengst inni í dal þá mætti ætla að það þyrfti mömmukoss á bágtið sem í öllufalli er engin smáskeina heldur líklega svöðusár vegna stærðar skepnanna sem um ræðir.
stingum af - í spegilsléttan fjörð • Þarna erum við aðeins farin að nálgast rétt umhverfi fyrir hvalinn og selinn... En hvað með þetta skeinusár þá?
stingum af - smá fjölskylduhjörð • Er þetta full rúta af fjölskyldum sem tekur sig saman og stingur af?
senn fjúka barnaár • Jáhhá, það er viðbúið miðað við þann súrrealisma sem á undan er genginn.
upp í vind, út á sjó • Það er hægt að horfa á fræ og ýmislegt efnislegt fjúka upp í vind og út á sjó en mér þætt gaman að sjá afstæðan hlut eins og tíma fjúka.
verðmæt gleðitár, • Og hver metur þau? Erum við að tala um einhvers konar gerning þar sem einn tekur við tárum, eykur verðgildi þeirra og selur þau svo aftur á uppsprengdu verðmati?
- elliró, elliró • Iss, það hefur verið sannað með alls konar rannsóknum að fólk hefur aldrei meira að gera en í ellinni. Elli ró... ég held ekki.
hoppum út í bláinn, • Hér er barnsleg einfeldni komin í ljóðmælanda.
kveðjum stress og skjáinn, • Það er gott að losa sig við stressið en hvað kemur það okkur við þó höfundur losi sig við áskriftina af Skjá 1? Efnishyggjupési augljóslega.
syngjum lag, spilum spil, • Með svona opinni setningu er verið að bjóða upp á ósætti og glundroða. Þegar ekki er tilgreint hvaða lag er verið að syngja eða hvaða spil er þá er ekki von á góðu.
þá er gott að vera til • Já, aldeilis gott að vera til í þessum hávaða og látum þegar menn kasta teningum í Olsen-Olsen og syngja Nallann við undirleik Gamla Nóa.
tínum skeljar, fjallagrös, • Skeljar eru ágætis skraut og fjallagrös eru fín sem krydd í mat eða sem te. En það er ekki verið að rökstyðja það á neinn hátt.
látum pabba blása úr nös, • Það var auðvitað - Hvar er jafnréttið í þessari veröld? Alltaf skal pabbinn erfiða og fórna sér í alla skapaða hluti.
við grjótahól í feluleik, • Í þokkabót er verið að láta hann - fyrir utan allt erfiðið - leita að einhverjum krakkagríslingum bak við torfæran hól sem samanstendur af stórgrýti og öðrum leiðindum.
á hleðslu lambasteik, • Er lambasteik ofan á þessari grjóthrúgu sem börnin eru að fela sig fyrir pabbanum í kringum? Og ég býst við að pabbinn sé að grilla lambasteikina á meðan hann er að erfiða við eitthvað sem og að eltast við börn í einhverjum dómadags feluleik. Hvar er mamman eiginlega?
stingum af - í spegilsléttan fjörð • Já, gáfulegra umhverfi eins og áður segir og ljóðmælandi líklega farinn að sætta sig við það til að forða því að þurfa að standa í meiriháttar fyrstu hjálp vegna hvalsins og selarins.
stingum af - smá fjölskylduhjörð • Önnur rúta? Þetta er farið að verða stærra en umferðarmiðstöðin í umfangi.
senn fjúka barnaár • Þar sem höfundur er fram úr hófi linmæltur þá má gera því skóna að hann sé að senda börnin sín í klippingu og þetta eigi að vera barnáhár.
upp í vind, út á sjó • Og ef barnið er hjá rakaranum utandyra þá er ekkert óeðlilegt að hárlufsurnar fjúki út um allt.
verðmæt gleðitár, • Það er augljóslega ekkert efnahagshrun hjá ljóðmælanda - allra síst í tárakirtlunum.
- elliró, elliró • Höfundur ætti að kanna þetta áður en hann fer að fullyrða um þessi rólegheit.
Miðað viðhvað hér að framan er gengið verður að segjast eins og er að höfundur á í talsverðum erfiðleikum með fjölskyldulífið. Eiginkonan situr líklega á rassinum alla daga og lepur sérrí meðan karlanginn þrælar alla daga við súrrealískar aðstæður. Ljóðið er klárlega merki um talsverða sturlun vegna álags og má færa sönnur á það að hér sé um að ræða beina afleiðingu þess að verslanir veittu konum 10% afslátt í búðum nýverið.
Það er kvöldsól um sumarsólstöður, seint á kvöldin, rétt fyrir miðnætti. Og lækir geta verið nálægt lautum, jafnvel í lautum. Svo hættir skynsemin.
Aha! Nú loksins skil ég þetta. Þú ert þá þessi Bjarki sem er búinn að vera að klæmast á dægurlagatextum í síðdegisþættinum á Rás 2. Komst nú upp um kauða. Bjarki Sívertsen.
Þetta er ekkert mikið grillaðri texti en sumir textarnir frá hljómsveitini "Ný dönsk" Fjólubláar flaueilskinnar......
Önnur eins meiðyrð og Hlebbi lætur út úr sér hér hef ég ekki séð á Gestapó áður.
Ég var að hugsa um þetta sel í gærkvöld og í morgun og fannst ekkert óeðlilegt við að sel væru í dölum. En - nei, það er ekki sel í þessum dal.
Hvað er þetta, má ekki vera smá súrrealiskur ? Með göldróttan hval og fyndinn sel, allt má í skáldskap.
Veistu. Ég bjó fyrir vestan í nokkur ár og ég skil þetta kvæði alveg. Alls ekkert súrreallískt hér á ferð. En að þú sért að bera þessar vafasömu pælingar þínaf fyrir alþjóð undir dulnefninu Bjarki. Það er alvöru mál... MIKIÐ ALVÖRUMÁL.
Ívar virðist mér vera að segja að þessi texti flokkist undir bókmenntastefnuna: "Bull" , sem þykir góð og gild í
dægurlagatextagerð. En er þetta ekki fremur önnur stefna
sem hefur líka tíðazt í dægurlagatextagerð svo kallað:
"Fyllirísisröfl"? Og á hún bara ekki prýðilega við í textum
sem eru sungir í öldurhúsum?
Hlewagastir: Þú náðir mér. Ég lofa að gera þetta aldrei aftur.
Útvarpsstjóri: Já, ég er miður mín.
Regína: Þennan sel!
Megas: Við vitum það
Kiddi: Nei, kveðskapur er dauðans alvara.
Huxi: Þú ert alvörumál
Bullustrokkur: Þú ert bókmenntastefna!