Nú hafa brjálæðingarnir í Fellunum tekið völdin í byltingu.
Það er ekki riðið við einteyming í þessari helvítis pótitík. Spaugari, tveir pönkarar, kona, ritstjórnarmeðlimur, kona og fleiri hafa í samstarfi við Dr. Krulla Speak-a-lot, uppgjafa hljómborðsglamrara og Strætókellingu tekið völdin í Reykjavík. Þetta lið er ekkert nema djöfuls Fellapakk. Hvað þykist þetta lið eiginlega geta? Æltar spaugarinn að setja endalausa brandara? Ætla pönkararnir að kúka á kerfið á hverjum þriðjudagsmorgni klukkan 11? Ætla konurnar að nota aðeins meiri maskara alla miðvikudaga milli 13 og 18? Ætlar ritstjórnarfulltrúinn að ritstýra þessu öllu saman? Ætlar doktorinn að röfla sig út úr öllu þannig að allir verði löngu farnir þegar hann loksins ber tillögur upp til atkvæða? Ætlar uppgjafa hljómborðsglamrarinn að reyna að halda álíka góðri stemmingu og þegar Ross Geller í þáttunum um Friends fældi alla út af kaffihúsinu með furðulegum og smábarnalegum hljóðgerningum samansettum úr þeim óhljóðum sem lélegir hljóðgerflar hafa að geyma? Ætlar Strætókellingin að vera sífellt í strætó og mæta aldrei á fundi? Þá þarf náttúrulega að kalla á vinstri-slagsíðu-útvarps-bókmenntafræðinginn sem sagði að þetta væru allt asnar og hann íhugaði að hætta.
Mér finnst þessi framboð ekki hafa sýnt nægilega nærgætni við framboð sín og stefnumál. Mér finnst þessi framboð ekki hafa náð til fólksins. Mér finnst eins og pönkararnir og spaugarinn hljóti að hafa farið með ljósritunarvél inn í kjörklefann, ljósritað um 18.000 atkvæðaseðla og stungið þeim í kassana. Þetta er ekkert eðlilegt fylgi, kosningaþáttaka 165%? Kommonn!
Svo er alveg bókað mál að þessir bölvuðu felladónar koma til með að rústa neðra Breiðholti bara af því þeir hafa náð völdum. Ég skora á neðri-Breiðhyltinga að ráðast til sóknar með naglaspýtum og Molotov-kokteilum gegn þessu Fellapakki! Við Hafnfirðingar eigum nú nóg með vesenið sem hér er en við viljum ekki fá þetta helvÍtis Fellapakk yfir til okkar! Nú eigið þið leik neðri-Breiðhyltingar!
Í mínum huga er enginn munur á Fellunum, Hafnarfirði eða nokkrum öðrum stað innan flóttamannabúðanna á höfðuborgarsvæðinu.
Auðvitað væri réttast að stýra öllu með 20 hliða tening. Ef þú vilt fá eitthvað þá færðu að kasta tening, ef þú færð yfir 10 þá færðu það frítt, ef þú færð undir 10 þá verður þú að borga fyrir það sjálfur. Ef þú færð 1 þá verður þú laminn af Magnúsi Ver og ef þú færð 20 þá máttu lemja einn atvinnupólitíkus að eigin vali.
Grýta: Nei, alls ekki, ég vissi að þetta færi svona í Firðinum.
Jarmi: Þetta er bara hreint skínandi hugmynd.
Þetta er náttúrlega algert svindl í Habbnarfirði.
Auðir fengu fleyri atkvæði en Vinstri-Grænir, og eiga því að fá þann stól.
Öll mál sem falla 5-5 í bæjarstjórninni, milli D og S, fara þá í bæjaratkvæðagreiðslu.
Og í bæjaratkvæðagreiðslunni mega þá þeir einir kjósa sem skiluðu auðu 29. maí.