Helvítis fokking fokk!
Í dag er 2. janúar. Ég er búinn að vera í jólafríi frá 23. desember og búinn að hafa það gott. Í dag er föstudagur og mér finnst að það eigi að leiða í lög að 2. janúar sé frídagur. Ég er vægast sagt dauð þreyttur og langar mest að fara heim að lúlla! ANDSKOTINN! Það er fjandans föstudagur og frídagur á morgun!
Já en maður er hreint ekki búinn að jafna sig eftir áramótin þann 2. janúar!
Mikið er gott að þetta góður dagur. Ég var bara að vakna, er ennþá uppí rúmi, undir sæng og að hafa það kósí [Gefur frá sér vellíðunarstunu] Ég vona bara að þú skemmtir þér VEL í vinnunni Ívar. [Hlær]
Þú nuddaðir því framan í mig þegar þú varst í fríi og ég þurfti að fara að vinna. [Hnussar]
Ég var mættur til vinnu rétt rúmlega 7 í morgun.
Mér fannst svo leiðinlegt í vinnunni að ég varð dauðfeginn, (þó ljótt sé frá að segja), þegar ég þurfti, af óviðráðanlegum orsökum, að fara heim kl 10:30.
Ég verð sennilega eitthvað hressari á mánudaginn... vonandi...
Ívar, þúeiginlega snérir bakinu í Villimey og baðst hana um að sparka í rassinn á þér þarna... en annars er lausnin á þessu vandamáli að hringja og segjast vera slappur... reyndar fer þá dagurinn í að friða samviskuna en maður getur alveg gert það með smá blút.
Og ég veit alveg hvað þú ert að tala um... vann í nokkur ár í Stórmarkaði og 2 janúar er vörutalningardagur... það var sko ekkert grín eftir áramótaþynnkuna.
Í bönkum á síðustu öld (a.m.k.) var líka tiltektardagur 2. janúar.
Ætli það sé ennþá - og að það verði kannski framkvæmd alvöru tiltekt í dag?
Neeei, ég reikna ekki með því. <Dæsir mæðulega>
http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/2009/01/02/bankautibu_lokud_fram_yfir_h adegi/
Svo virðist vera.
Já, ég vorkenni þér Ívar. Það er miklu betra að vera í skóla, þar segir enginn neitt við því þó þú sofir fram á borðið.
Iss bara aumingi.
Ég var vaknsður klukkan fimm í morgunn og út að vinna klukkan sex svo hættu þessi væli og skæli þarna ríkissbyttan þín.
Frídagar ættu auðvitað að vera miklu fleiri því það er svo oft sem það tekur því í raun ekki að mæta til vinnu vegna nálægðar í tíma við aðra frídaga. Þetta er samt ekki alveg einfalt mál, sbr. þetta gamla fjelagsrit vort:
http://www.baggalutur.is/gestapo/profile.php?mode=viewprofile&u =176&n=146
Hjer fyrir ofan bætti Gestapóið við eyðu á eftir "&u" aftarlega í 'linknum' þannig að þetta virkar ei nema eyðan sje tekin burt [Hefur í hefndarskyni aðgerðir gegn óvinum ríkisins].
Ég vinn hjá CERN og þar er 2. janúar eins og hver annar vinnudagur, nema á laugardegi og sunnudegi. Nú er að vísu komin helgi og því frí eftir.
Gott jólafrí hjá þér. En afhverju dauðþreyttur?
Ég vildi óska að ég fengi vikufrí bráðum, eða bara helgarfrí. (Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann og sér ekkert nema fólk í fríi)