Þar sem japanski slagsmálakonungurinn hefur flutt úr Baggalútíu þá er þörf á nýjum konungi!
hlewagastiR hefur alla tíð sýnt af sér mikla kænsku og gæði. Hann hefur verið með okkur allt frá upphafi þó að hann hafi tekið sér eilítil hlé. Hann fór í felur eitt sinn og dulbjó sig en alltaf var það í þágu hins góða í Baggalútíu og við brotthvarf Hakuchis er hlewagastiR réttilega orðinn konungur okkar.
HYLLIÐ HINN NÝJA KONUNG!
[Ritar nafn Ívars á lista yfir velgerðarmenn ríkisins sem ber að hygla við hvert tækifæri. Á sama lista fara þeir sem fylgja ráðum hans góðum]
Hann má vera kóngur þangað til hin sanni kóngúr kemur úr útlegðinni... sem hann mun gera... segja þjóðsögurnar.
Smart.
Styð þetta... svo framarlega sem hann breytir engu, það má reyndar herða refsingar við málvillum.
Já, ókei, Hlebbi má vera kóngurinn minn fyrst hann endilega vill... [Lyftir þrem fingrum og blessar hlewagastiR, og sprautar síðan á hann vígðu ákavíti úr vatnsbyssu]
Ég styð tillögu Villimeyjar um að herða refsingar við málvillum. Brennum alla málvillinga! [Gerir tilraun til múgæsingar]
Refingar við málvillum verða hertar en refsingar við innsláttarvillum verða felldar niður. Allir sem geta logið sig út úr veseni með því að bera við innsláttarvillum munu því halda lífi og limum.
Vá, skrifaði ég Villimeyjar? Ég hugsaði um Nornina - æ þið blámenn eruð öll eins.
Þetta var klárlega innsláttarvilla. Það er auðvitað útilokað með öllu að heilafrumur mínar séu enn að hrista af sér síðustu áfengisdropana...
Ég hef fulla trú á að hinn eini sanni konungur komi úr útlegð - við fyrirfólkið skilum okkur alltaf aftur!