— GESTAPÓ —
Í uppáhaldi:
Félagsrit:
Ívar Sívertsen
Friðargæsluliði.
Heiðursgestur og  skáldjöfur.
Pistlingur - 10/12/07
Baggalútíubanki kaupir 90'% í íslenska ríkinu

Tilkynning hefur borist frá Baggalútíubanka

Miklar væringar hafa verið á íslenskum fjármálamarkaði og hafa sérfræðingar í þeim málum sagt allt á leiðinni til fjandans. Seðlabanki Íslands skrifaði stóra ávísun í dag sem bjarga á Glitni. Íslenska ríkið hins vegar gaf út afkomuviðvörun vegna þessa og afréð þá bankastjórn Baggalútíubanka að kaupa 90% í íslenska ríkinu til að bjarga því frá þroti. Í kjölfarið var tekin sú ákvörðun að taka upp gjaldmiðilinn Böggur á Íslandi og er gengið 1 Bagga = 1.920,47 krónur.

Ívar Sívertsen hefur verið ráðinn forstjóri Íslands í kjölfarið og mun hann sjá um að koma Íslandi í betri mál. Ívar er boðinn velkominn til starfa.

   (60 af 287)  
10/12/07 05:01

Steinríkur

Hvert var kaupverðið?
Er þetta nokkurs virði?

10/12/07 05:01

Ívar Sívertsen

Nei... þetta var bara vasapeningur.

10/12/07 05:01

Skrabbi

Er þetta ekki sá sami Ívar og var aðaleigandi Glitnis?

10/12/07 05:01

krossgata

Ætlar þú að koma landinu í var?

10/12/07 05:01

Ívar Sívertsen

Nei... ég ætla að selja það fyrir kút af Blút

10/12/07 05:01

Vladimir Fuckov

Þá vonum vjer að sjá kútur sje stór... skál !

10/12/07 05:01

Upprifinn

ég býð fjórar flöskur af ákavíti í skerið.

10/12/07 05:01

Texi Everto

Auk þess legg ég til að Karþagó verði lögð í rúst!

10/12/07 05:01

Ívar Sívertsen

Nohh... það er bara komið uppboð... ÉG býð tvo stóra kúta af Blút.

10/12/07 05:01

Nermal

Ég býð 11 hvít koddaver!

10/12/07 06:00

Huxi

Þetta er bara skrökulýgi

31/10/07 01:00

Jóakim Aðalönd

Ívar Logsuða! Hahahahaha...

31/10/07 02:00

Ívar Sívertsen

Logsuða?

31/10/07 02:00

Jóakim Aðalönd

Já, Lárus Welding = Lalli Logsuða. Ívar Welding ert þú...

31/10/07 04:00

Ívar Sívertsen

Nei, ég er meira svona geirnegling, svona Haardviðargeirnegling.

31/10/07 05:01

Z. Natan Ó. Jónatanz

Er hægt að kaupa 90% í íslenzka Ríkinu ?
Ég hélt að það væri eingöngu ÁTVB, sem hefði svo sterka drykki á boðstólum, & þá fagurbláa...

Ívar Sívertsen:
  • Fæðing hér: 11/8/03 12:21
  • Síðast á ferli: 22/6/23 12:25
  • Innlegg: 12356
Eðli:
Ákaflega fagur ungur maður með mikinn metnað og kann sig á allan hátt. (hann lærði það á kvöldnámskeiði hjá Bréfaskóla SÍS)
Fræðasvið:
Ég veit allt, get allt og kann allt en fer rosalega leynt með það og kann að fela það vel.
Æviágrip:
[i]Fæddur að handraðanesi á sóðbrókarströnd í Ristilfirði. Lést skömmu síðar. Reis upp frá dauðum eftir korter og bað um brauð. Eftir það var ekki aftur snúið. Hann hefur síðan verið ánetjaður Baggalúti og virðist ekkert vera að skána.Hann fékk sér fæðingarblett á kinnina skömmu áður en hann lét taka hann af sér. Hann hló skömmu eftir það. Ívar hefur nú hafið búskap á Eyðibýli á Auðkúluheiði. Hann hefur aldrei verið við kvenmann kenndur en hann er all oft kenndur. Sívertsenættin hefur lýst hann útlægan og krafist þess að hann afsali sér ættarnafninu og taki upp nafnið Nestrevís en hann hefur margsinnis hafnað því. Ef þú ert að lesa þetta ennþá þá ert þú líklega jafn skemmdur og Ívar... ef ekki skemmdari barasta. Ertu enn að lesa? Nei nú læt ég leggja þig inn á geðdeild! Það er ekki heilbrigt að lesa svona langt! Viltu hætta þessu! HÆTTU SEGI ÉG!!! Ef þú ert enn að lesa og finnur ekki fyrri vott af þreytu þá skal því bætt við að þegar Gestapó var opnað í árdaga þá gerðist Ívar fastagestur hið snarasta. Hann hefur æ síðan verið einn virkasti gestapóinn og ritað mikið. Hins vegar er ljóst að hann kemur til með að auka viðveru sína á Gestapó á komandi árum því nú hefur hann komið sér í innivinnu við tölvu. Ertu enn að lesa þetta? ÉG held svei mér að þú ættir í alvöru að leita þér hjálpar. Ég er löngu hættur að lesa þetta... ég veit ekki einu sinni hvað stendur eftir línu þrjú. En hvað um það. Síðan hafa mörg vötn runnið til sjávar og eiginlega svo mikið að það er ekkert salt eftir í sjónum, það lagði á flótta upp í ár og stöðuvötn þannig að nú er sjórinn pakkfullur af ferskvatnsfiskum og ferskvatnshvölum. En það bar til um þessar mundir, að boð kom frá Megasi keisara, að skrásetja skyldi alla drykkina. Þetta var fyrsta skrásetningin og var gjörð þá er Gylfi Ægisson var blandstjóri í Stúdjó Sýrlandi. Fóru þá allir til að láta stjaksetja sig, hver til sinnar borgar. Þá fór og Rúnar Þór úr Litlu Hraunum frá Hótel Borg upp í Morgunblaðshús, til borgar Davíðs, sem heitir Hádegismóar, en hann var af ætt og kyni Davíðs,að láta skrásetja sig ásamt Maríu hjákonu sinni, sem var þung. En meðan þau voru þar, kom sá tími, er hún skyldi verða léttari. Ældi hún þá bjór sinn frumdrukkinn, sagði hann vondan og lagði hann í fötu, af því að eigi var romm handa þeim í gistihúsi. En í sömu byggð voru barþjónar úti í haga og gættu um nóttina drykkja sinna.Og vörður laganna stóð hjá þeim, og dýrð Áfengis ljómaði kringum þá. Þeir urðu mjög fullir, en löggimann sagði við þá: Verið óhræddir, því sjá, ég boða yður mikinn fögnuð, sem veitast mun öllum lýðnum: Yður er í dag afréttari færður, sem er Hristur og hrærðu, í Mogga Davíðs.Og hafið þetta til marks: Þér munuð finna gubb vont, lagt í fötu. Og í sömu svipan var með löggumanninum fjöldi himneskra hljómsveita, sem lofuðu stuð og sögðu: Dýrð sé stuði í Hádegismóum, og fiður á Davíð og mönnum sem hann hefur velþóknun á. Þannig hljóðar hið heilaga stuðspjall. Og þegiðu svo!