Þeir ætla ekkert að breyta stýrivöxtunum
Mér finnst þessir pótintátar sem stjórna stýrivöxtunum vera farnir að svíkja loforðin. Stýrið í bílnum mínum hefur ekkert vaxið!
Örrit fyrir örvita?
Jæja, það stóð svosem ekkert skárra á þessari blessuðu forsíðu.
Já notið einsgöngu eignarfallssamsetningar, ég grátarbæni ykkur að fara að þessari ráðagjöf.
Þið eigið að segja sjónarvarp, landsvernd, hestahús, símastöð, skeljarfiskur, borðsbúnaður, launaþegi, bréfaberi, smjörslíki, rafsvirki, iðnarnám, fjárþúfa, kýrbein, fiskabúð, sem sagt: alltaf að hafa fyrri liðinn í eignarfalli.
Annars verður Resgína brjáluð! (Sjálfur er ég hlutarlaus í málinu.)
[Það er hægt að sýna fram á að þessi orðabelgur minn sé útúrsnúningur og að tilmæli Resgínu séu studd haldbærum beygingarfræðilegum rökum. Ég skal gefa þeim sem getur bent á þau lauf af appelssínunni minni.]
Þetta er nú ekki þitt besta félagsrit Ívar. En það er auðvitað bara mín persónulega skoðun.
Eyða þessu ? Ertu orðinn alveg tregur Gretzky ?
Þetta er fyrsta flokks fimmaura brandari sem kemur á hárréttum tíma !
Skál Ívar.
Amma mín blessuð talaði nú um kálfskjöt. Ekki hefur stýrið í mínum bíl stækkað, enda eins best, því þá myndi plássið minnka fyrir mig.
Annaðhvort hefur stýrið á bílnum mínum vaxið, eða ég hef bætt á mig...
Köttur setti upp á sig stýri, úti er ævintýri.
[Stýrir Blesa út í ævintýrið]
Þetta er ekki neitt verulega fyndið. Svarið hjá Hlebba er það skársta á síðunni. Ég gef Ívari 2 stjörnur og Hlebba 3, af 5 mögulegum.
Eyddu þessu óriti nú þegar! Allir Gestapóar, sérstaklega ég hef haft umburðarlyndi fyrir vitleysunni í þér Ívar, en nú er nóg komið! Þú ert einhver sá vitlausasti fáráðlingur sem nokkur manneskja eða önd getur alið. Villtu leita frá villu þíns vegar? Farðu þá á vefbók sem heitir jonvalurjensson.blog.is. Þar muntu finna öll svör sem þú leitar að..
já og mikið finnst mér þessi gaur veruleikafyrrtur eins og allir stuttbuxnabloggararnir.