Þetta félagsrit er ljótur þjófnaður, léleg skrumskæling og asnalegur útúrsnúningur en ég barasta varð... Sorrý hlebbi og þið öll.
Raðhús Lindu, reist af herrum
risið sárnar landsins perrum
því lokað er á læraglens
og Linda segir: ekki séns!
Þó væri ljúft ef Linda myndi
lofa þeim að sjá í skyndi
nektardans á neðri hæð
njóta þess, fá beint í æð..
Hannesun! [Hreytir ónotum í Ívar að hætti sumra Gestapóa þegar einhver vogar sér að gera grín að öðrum Gestapóum með því að stæla þeirra félaxrit:]
Þetta er einhver hallærislegasta Hannesun sem ég hef séð.
Hmmpff...
Miðað við þann þroska og gáfnafar sem þú hefur sýnt hér á síðum Gestapósins, hingað til, kemur það mér mest á óvart að þú skulir hafa náð að skrumskæla félagsrit Dulu svona heiftarlega, án utanaðkomandi hjálpar. Ekki trúi ég því að þroskaþjálfinn þinn hafi hjálpað þér, svo það hlýtur að vera einhver annar á sambýlinu sem þú gast kúgað þér til aðstoðar.
Ég legg til að þú finnir þér, einhverstaðar á hinum víðu lendum alnetsins, mjúka drullu þar sem þú getur grafið þér djúpa holu, skriðið ofaní hana, og rótað svo skítnum yfir þig. T.d. Barnaland.is er fínasta moldarflag fyrir svín með þitt innræti. Þar getur þú drullað yfir allt og alla að vild án þess að það sjáist, því forin er svo mikil þar hvort eð er.
Hafðu svo vit á því að láta ekki sjá þig hérna framar, fífl.
Er það nú vanvirðing á skrifum annara.
Humm... Jújú Þetta er ein leið til að "skrifa" félagsrit. frekar lélegt þó, orginalin var betri. En þannig er það oftast Svo eyddu þessu bara og skrifaðu eitthvað orginal eftir sjálfan þig.
Já, ég er eiginlega sammála, þetta er farið að líkjast einelti...
Og svo lærði ég af biturri reynslu um fjögurra ára aldur að sami brandarinn er aldrei fyndinn oftar en einusinni.
Þú ert dóni og drulludúnkur hinn versti. Það á ekki að vera að atast í félaxritum annarra Gestapóa á þennan hátt. Ef þú hefur ekkert þarfara að gera en að stela og snúa útúr fyrir öðrum, fáðu þér þá vinnu hjá Hannesi H.
Nema... [ Fattar og ljómar upp] Srabbi er Hannes, Skrabbi skíktalabbi er Hannes...
[Grípur um kvið sér, leggst í fósturstellingu á jörðina og veltist um, emjandi af hlátri]
Alveg er ég viss um að Kimi á eftir að brosa hringinn vegna þessa í margar vikur. Sumrinu bjargað!!
Nei, veistu, ég á eftir að vera í mökkfýlu þegar ég hitti hann næst og urra á hann. Hann fer í svaka mínus og verður voða sorrý. Þá er sumrinu mínu bjargað.
Huxi sluxi dulluuxi
Aðalönd með engan rass
ætlaði að fara að skíta
úr honum kom kúahlass
korktappi og spíta!