Hafiði þetta pervertarnir ykkar [glottir eins og fífl]
Á kvöldi einu köldu
kjól ég skrýddi til minja.
Ný- þar -liða ljót á öldu
lagðist bitur ninja
Að þá bar einn bráðan gutta
í býsna miklu móki,
vældi eina vísu stutta
vesalingur, Jóki.
Þeir mér ansi þótti stynja
þá var málið eins og flóki
Ölvuð orðin nú var ninja
og nokkuð rakur orðinn Jóki.
Lagðist þannig lárétt ninja
langaði með Jóka
Öndin sagðist öflugt skynja
ömurlega djóka
Upphófst mikill mektarleikur
mig ég tók að spóka
Undrast þá einn undrableikur
afdrif sinna bróka.
Nam ég brækur báðar tvær
og brenndi þar til ösku
Þá ég mér á lamdi lær
og larfa setti í tösku.
Klæðalausir karlar tveir
kepptust við að leita,
Fötin oní fóru leir
og fiska- urðu -beita.
Ortu bitrir kappar brag
börðust við að semja
Að því hlæ ég hvern einn dag
og hamslaust þá ég emja!
Ninjan hafði nokkuð þá
notast við að góla
Jóki skrýtni skelfdur, já,
skoðaði þá kjóla.
Jóki kjólinum klæddist nú
kaldur, hræddur, þreyttur
Ninjan sagði Heyrðu, Hú!
Helvíti ertu breyttur.
Fóru kappar keikir þá
kumpánlega að hátta
Síðan glaðir sigldu hjá
í Samtökin 78.
Hmmm...
Í fyrsta lagi var félaxrit mitt ekki sett fram í neinu samhengi við félaxrit ninjunnar. Í öðru lagi skil ég ekki tenginguna við meinta samkynhneigð okkar.
En það er greinilegt að skáldagyðjan hefur séð leik á borði og ákveðið að hella okkur alla fulla af sér í kveld...
Skál og prump!
Hjarta mitt heilt er úr járni
hjálpandi ljæ aldrei hönd,
Gamanið þó kannski kárni
Kimma hjá Aðalönd.
[Hlær Blesahlátri] Þetta kemur mér ekkert á óvart heldur. Ninjur klæðast nú yfirleitt einhverskonar kjólum. Og auðvitað er Kimi svona þenkjandi líka. Andarskömmin hefur gengið um ber að neðan frá því ég sá hann fyrst.