Árshátíð afstaðin og allir (vonandi kátir)
Ég ásamt fleirum stóðum fyrir tónlistargjörningi á árshátíð Gestapó. Ég vildi bara þakka meðspilurum minum fyrir samstarfið og öllum þeim sem höfðu eirð í sér að hlusta á okkur fremja þennan tóngjörning......
Hljómsveitin Stormsveitin Kóbalt hefur ekki sungið sitt síðasta! Því get ég lofað ykkur!
Skabbi, var það ekki búið að sanna sig með að vera hið mesta óráð. þar sem að þú getur að því er virðist ekki geta haft alla með í vísunum þínum. [glottir eins og fífl.]
Ég man ekki betur en fluttur hafi verið blús kenndur við Skabba.
Stormsveitin stóð sig vel og var hin besta skemmtun. Takk sömuleiðis.
Satt best að segja, þá var ég ekki á staðnum, þar sem ég þurfti að ritdæma óvenjumörg félagsrit sem höfu borist fyrir helgina.
Efnistök þessa félagsrits sýna heljartök höfundar á forminu, þegar grannt er skoðað.
Hér er ekkert væl eða viðbjóðs væmni, þó að örli á örlitlum trega. En það er skotið fast á milli línanna, á það, sem augljóslega hefur aflaga farið, sbr, frásagnir sem minna á Egils sögu, þar sem menn spýja ælunni, hægri vinstri, og höggva svo mann og annan. Virkilega gott hjá Ívari
Skabbi, það var flutt mjög fallegt lag eftir Önnu Pönnu við Raunheimablúsinn. Sérlega væmið og skemmtilegt. [Ljómar upp]
Verður hægt að heyra eithvað af þessum lögum eins og við fengum þegar Baggapó kom út í dentíð
Sæll, og takk fyrir spiliríið. Getur verið að þú hafir tekið röddina mína í misgripum þegar við vorum að pakka dótinu saman? <Reynir að koma upp orði>
Já, Skabbi, bæði "Baggapó" og "Raunheimablús" voru fluttir. Nú þarftu að semja meira fyrir næsta gigg.
Þakka sömuleiðis og miklu frekar. Fylgist spenntur með framgangi Stormsveitarinnar Kólbalts.
Já alveg hreint frábært. Ég vil líka biðja Bangsímon um að vísa á þetta stórkostlega lag hans, sem ég hef reynt að rifja upp núna án árangurs.
Stormsveitin stóð sig afar vel í textagerð, hljóðfæraleik og söng. Skál !