Nú er búið að blása til árshátíðar 17. nóvember. Staðsetning tilkynnt síðar.
Þá er hægt að fara að blása til leiks hjá STORMSVEIT GESTAPÓ.
Galdrameistarinn stakk af úr landi með þeim orðum að hann ætlaði "aldrei að vinna aftur með þessum fávitum" í Kóbalt. Það var að vísu sagt formsins vegna og hlökkum við til að spila aftur með honum þegar færi gefst á því. En Kóbalt verður því miður ekki starfhæf sökum þessa. Þess vegna vantar okkur tónlistarfólk sem spilar á allan fjandann. Ætlunin er að Stormsveit Gestapó haldi uppi fjörinu og leiki jafnvel fyrir dansi /dilli /skaki /setu. Ég hef tekið að mér að stýra þessu verkefni en því miður get ég ekki reddað húsnæði til æfinga. Þetta væri í mínum huga einhvers konar tónsmiðja sem myndi í þessu tilviki eiga við lög annarra eða lög sem búið er að semja en útsetja þau og gera þau að okkar framkvæmd.
Það sem þarf að gera er eftirfarandi:
Redda æfingahúsnæði, redda hljóðfæraleikurum, redda hljóðkerfi svo gestir þurfi ekki að grjóthalda kjafti og svo hljóðfæraleikarar þurfi ekki að garga úr sér raddböndin eða sprengja nikkur og rífa lúðra.
Sjálfur leik ég á gítar og bassa og syng. AnnaPanna syngur og leikur á gítar. Svo vantar bara fleira fólk.
Inntökuskilyrði í Stormsveit Gestapó:
- Eiga eða hafa aðgang að hljóðfæri og kunna eitthvað á það
- Geta spilað lög með litlum fyrirvara
- Hafa getu til að taka þátt í tónlistarlegum fíflagangi án þess að það fari til fjandans
- Vera mjög skemmtileg(ur) og geta miðlað því til samspilenda sem og áheyrenda.
- Kostur er að geta spilað af fingrum fram einleikskafla eða spunakafla sem meika sens með litlum fyrirvara
Ég er ekki að fara fram á að fólk hafi lært á hljóðfæri í hundrað ár eða sé alger sjení. Ég vil bara fá fólk sem gæti gert stundina ógleymanlega og skemmtilega..
Tvö lög eru komin á efnisskrána. Annars vegar Baggapó sem frumflutt var í fyrra og svo lítið leyninúmer sem verður opinberað þegar þar að kemur.
Skráningar í STORMSVEIT GESTAPÓ fara þannig fram að menn senda mér einkapóst með upplýsingum um hljóðfæri, getu og reynslu.
KOMMASVO, VERA MEÐ!!!
skráir á blað
Ívar Sívertsen - Gítar, bassi, söngur og annað klúður
Anna Panna (fær ekki að sleppa) - Söngur, gítar,
Billi Bilaði - Gítar og gamanmál
Næturdrottningin - Söngur og blokkflauta
Tónlistarlegum Fíflagangi!?
Þú getur bara sjálfur verið tónlistarlegur þarna...
Sorrý, en ég á Eyjafjarðarmet í lélegum söng innannhúss án atrennu. Svo kann ég ekki á nokkurt hljóðfæri. En ég er samt svakalega skemmtinlegur.
Blóðugt: Kommar, Kratar, Íhöld og Famsóknarfólk velkomið. Raunverulega allra flokka kvikindi.
Fíflagangur: Já, þakka þér fyrir, ég skal vera það.
Nermal: EInhver þarf að vera í sal að hlusta..
Sko.. ég kann að syngja.. já svo spilaði ég á blokkflautu í 7 ár þegar ég var yngri. spurning um að þurrka rykið af henni. haha.. Ég er allavega til í að syngja.
Samt þegar ég fer að hugsa út í þetta þá held ég að það passi ekki alveg að blanda blokkflautu í þetta. Svo eru líka 15 ár eða eitthvað síðan ég hef spilað. . hehe..
iss... blokkflauta má vera með! Lúðrar, púkablístrur, slagverk.. bara hvað sem er... svo lengi sem viðkomandi kann á það að einhverju marki.