bjakk bjakk bjakk bjakk!
Ég mætti í vinnu í gær frekar þreyttur þar sem ég þurfti að skutla Lexiu de Trix (móður Hexiu) út á kebblavíkurflugvöll þar sem hún var á leiðinni til meintra útlanda. Mér leið eins og ég væri að þynnast upp þrátt fyrir að hafa ekki drukkið áfengisdropa frá því á föstudeginum áður. Ég fór að fá hausverk, verða þungur í hausnum og fá illt í magann. Svo fór allt af stað. Maginn tilkynnti að hér væri ekki um timburmenn að ræða og krafðist tæmingar að neðanverðu. Ég rauk á til þess gert herbergi. Ég kom aftur fram og hélt áfram að vinna en af veikum mætti. Svo um hádegið er ég hafði skroppið fimm ferðir til að sinna áhugamálum magans aðra áttina ákvað ég að drífa mig heim.
Þegar heim var komið mældi ég mig og ég var náttúrulega með 2,5 gráðum hærri hita en ég á að mér. Og maginn var með endalausa stæla. ég hef lítið étið og eina sem ég get stytt mér stundir við er að hanga hér sem og að máta klósettsetuna ítrekað og þykjast vera hugsuður. Ég er búinn að lesa öll blöð á heimilinu og utan á allar nálægar pakkningar. Ég er ekki frá því að ég taki með mér Cheerios eða Corn Flakes á eftir... eða jafnvel umbúðir utan af rafhlöðum.. Bara svona til að hafa eitthvað að lesa.
Ég hata að vera veikur!
<Hlær einsog Nelson>
HA-HA !
Nei annars, ég samhryggist, taktu samt mynd ofaní dolluna og settu hér inn.
Hefurðu ekki bara fengið drullu út af ríkisstjórninni.
Einn vinnufélagi minn var veikur bæði í gær og fyrradag, en hann er nú reyndar líka eldheitur framsóknarmaður og aðdáandi Jóns Sig.
'ufff.. já ég skil þig svo. Þetta er sko ekki skemmtilegt.
Ég var svonaí viku. .Láttu þér batna Ívar.
Var reyndar ekki með svona hrikalegan niðurgang.. heldur meira svona flensu.. Ojjjbara...þetta er hvort tveggja ógeð..
Ekki gott að þú þurfir að takast á við þetta einn og óstuddur Ívar minn. Heilsuskál!
Hexía er enn heima, ekki satt? Annars skil ég þig svoooooooo vel. Allt of vel. Láttu þér batna og svo kemur ákavíti! Vííííí...
Þoli ekki svona "pípandi kolsvart og ógeðslegt og logsvíður..." átt alla mína samúð!
Varstu nokkuð að borða á Rikki Chan Ívar minn ?
Austurlenskir veitingastaðir sem geyma matinn í hitaborði eru mjög varhugaverðir í sambandi við matareitrun.
Matnum er haldið við 30-40 gráður kanski í heilann dag, sem er akkúrat kjörhitastig fyrir bakteríur.
Djöfulls aumingjavæl er þetta í þér Ívar.
Þú getur farið að kvarta þegar þú æðir á kamarinn og veist ekki hvorum endanum þú átt að snúa ofan í dolluna.
Fjör þegar maður situr með skúringarfötuna í fanginu, ælir og drullar.
Þá má fara að kvarta.
Ég hef setið með fötuna í fanginu á dollunni... m.a.s. sat ég í tvo og hálfan tíma á dollunni í nótt... tók því ekki að standa upp.
Ég mæli með Stríð og Frið sem dollulesningu. Titillinn hæfir líka vel magaveikindunum, hún er ógeðslega (já, ógeðslega) löng og svo er hægt að skeina sér á blaðsíðunum sem maður er búinn að lesa.
Ég hef sjaldan lesið jafn skemmtileg svör og við þessu félagstiri, það er einsog æl og ræp sé andans meðal og geri ykkur að þeim fyndnustu mönnum á netinu. Haltu áfram Ívar, þú ert skemmtilegur þegar þú ert með ræpu. Hvort sem hún er að ofan eða neðan.
Veikur, veikur, veikur. Andskotans kjaftæði er þetta! Sá sem tekur lyfin sín verður ekki veikur.
Dula - Það er augljóst að Ívar hefur verið með munnræpu en líklega eigi venjulega ræpu því eftir hann liggur mikill fjöldi innleggja frá þeim tíma er umrædd veikindi stóðu yfir. Er því ljóst að ræpan var að ofan (vonandi var sú ræpa þó eigi tvöföld eða þreföld).
[Færir Ívari 2 tonn af últrakóbaltbættum, fagurbláum vökva til að nota í lækningaskyni]
Vlad. hefurðu aldrei heyrt um nettengdar dollur?
mæli með CyberDump 3000 ULTRA Viper Plus.
Til hamingju með frelsunina. Þetta var annars að ganga....en óvenju smekkleg innlegg hér að ofan!
Ég skemmti mér alla vega konunglega að lesa þessa vitleysu hjá liðinu...