Ég á ættingja á Hornafirði, m.a. ömmu og afa. Gott hefur mér þótt að vita af möguleikanum á að fljúga austur til að spara tíma.
Helvítis melirnir hjá Flugfélagi íslands eru hættir að fljúga til Hornafjarðar. Þar af leiðir að næsti áfangastaður Flugfélagsins í austur frá Reykjavík er Egilsstaðir. Svo er það Akureyri og Ísafjörður. Frá Akureyri er svo hægt að taka tengiflug til Grímseyjar, Þórshafnar og Vopnafjarðar.
Hvað í dauðanum eru þeir að spá?!? Það er mikil hagræðing að geta skotist með Túrisa til Hornafjarðar í flugi og svo farið með þá í rútu upp á jökul í stað þess að hólkast með þá alla leiðina í rútu. Það tekur ríflega þrjá tíma að aka frá Egilsstöðum og suður til Hafnar. Það tekur fimm tíma að aka frá Reykjavík til Hafnar. Ef við miðum við kostnaðinn þá er mun hagkvæmara að aka þetta á einkabíl en að þurfa að taka flug og rútu.
Hvers eiga þeir að gjalda sem búa á Hornafirði, Djúpavogi og á svæðunum þarna í kring? Afi minn liggur nú mest á dvalarheimili aldraðra á Höfn og talið að stutt sé eftir hjá honum enda karlinn að nálgast nírætt. Til að fara í jarðarförina hans þyrfti ég núna að taka mér einn dag aukalega í frí til að koma mér austur, redda pössun einum degi lengur og allt þar fram eftir götunum.
Hvað varð um að halda öryggisnetinu? Ef ástæðan er sú að flugumferðarstjórum hefur fækkað þá blæs ég á þá skýringu. Þetta snýst bara um hvað er hægt að kreista mikið af fjármunum út úr fyrirtækinu til að hægt sé að selja það hæstbjóðanda og græða sem mest. Þetta er hin íslenska hugsjón, skítt með þjónustuna, græðum bara meira!
Nú verð ég að fá að leiðrétta þig kæri Sívertsen, Flugfélag Íslands hefur ekki flogið til Hornafjarðar heldur er það Landsflug en Flugfélagið hefur samt séð um bókanir o.fl. í tengslum við ferðir Landsflugs.
Landsflug hætti svo um áramótin og Flugfélagið Ernir tók við þeirra leiðum en hættir af einhverjum orsökum við þessa tilteknu leið. Svo að ef þú ætlar að vera fúll út í einhvern, vertu þá fúll út í Erni...
Ég veit ekki betur en að flugfélagið Ernir hafi verið að kaupa nýja 19 sæta Jetstream flugvél til að sinna áætlunarflugi til Hafnar og Sauðárkróks. Þetta las ég allavega í fréttum á netinu. Kannski er það tóm lygi.
Jáhhá... þetta þurfti að segja mér til að ég gæti vitað þetta.
Á meðan Landsflug var með þetta var alltaf hægt að skoða þetta og panta far á vef Flugfélagsins. En takk fyrir að benda mér á það.
Hmm...vill svo til að þetta skiptir mig ákaflega miklu máli - er þetta flugfélag Ernir með einhverja heimasíðu? Eða er hægt að sjá eitthvað öruggt um þetta...
er nefnilega að fara út á völl í fyrramálið að sækja manneskju í flug frá Hornafirði!!