Nú skal haldið Hagyrðingamót. Tíminn er óvenjulegur því þetta er fyrsta mögulega tækifærið eftir jólageðveikina til að kveða svolítið.<br />
Eftir að hafa legið á meltunni og sumir mætt til vinnu þá er vel við hæfi að hagyrðingamótið fari fram þann 27. desember, kl. 22.00 að mínum staðartíma sem mun vera um miðbik Hafnarfjarðar.
Yrkisefni skulu vera eftirfarandi:
1) Jólahaldið þetta árið
2) Málefni Byrgisins (varast ber að vera ærumeiðandi)
3) Ritstjórn Baggalúts
4) Árið sem er að líða
5) Erótík frá A-Ö
6) verður opinberað þegar þar að kemur
Sumt er erfitt að yrkja um, sérstaklega vegna þess hversu viðkvæm málefnin eru. En nú er um að gera að sýna færni sína í því að yrkja varlega.
Á -móti hagyrðinga- heil
hittumst elsku vinir
ekki skal ég senda meil
því sumir eru linir...
Þakka gott gott boð kæri Sívertsen.
Þetta er áskorun sem erfitt er undan að víkjast þar eð allir lampar og transformerar í tölvunni eru heilir og sæstrengurinn ennþá lafandi á lyginni sem og hrörlegt lyklaborðið.
Kannski kíki ég við.
Það er kannski rétt að benda á að sú breyting verður á í þetta sinn að ekki er nauðsynlegt að kynna sig eins og áður hefur verið. Það er vegna þess að við þekkjumst flest og finnst mér asnalegt að eyða púðri í það hvað eftir annað.