Ég hef all oft minnst á kaffi hér á Gestapó, hvort sem er í félagsritum eða á þráðum. Í dag ætla ég að nefna uppáhaldskaffið mitt.
Fyrir all nokkru nefndi ég kaffitegund sem mér þótti skondið að rekast á, Riddari Sívertsen. Þetta þótti mér all skondið í ljósi þess að ég, sjálfur Sívertsen og riddainn Heiðglyrnir áttum það til að elda grátt silfur hér áður á Gestapó. Kaffi þetta reyndist vera fínasta brugg. Það er bragðmikil blanda af alls konar baunum sem blandað er saman og ristað í Súfistanum. Bragðið er mikið eins og áður segir en það er mjúkt. Þetta er ekki einhver venjulegur uppáhellingur eða fljótlegt fjósakaffi. Þegar ég fæ mér Riddara Sívertsen þá mala ég það sjálfur og fæ mér mjög sterka blöndu og mikið af því.
Kaffið mitt fæ ég mér hins vegar aðeins á morgnana (ef ég hef tíma) og svo um helgar. Drekki ég einn stóran fant af þessu kaffi að morgni þá þarf ég ekkert kaffi það sem eftir er dags. Það kann að virðast sem þetta sé auglýsing frá Súfistanum en svo er hreint ekki. Þetta er meira svona í því skyni að félagsrit og sjónmengun Gvendar Skrýtna með langa titlinum færist út af félagsritalistanum
En aftur að kaffinu. Mér þykir gott að drekka það svart og sykurlaust en mér þykir það líka gott sem Latte eða Capuccino. Ég skora á ykkur að prófa þetta kaffi.
Ég sé nú ekki betur hér til hliðar en að þú hafir eitt sinn skapað álíka mikla sjónmengun sjálfur.
En já kaffið hljómar ágætt. Kannski að maður prufi einhverntíman.
Kaffið fæst í Súfistanum í Hafnarfirði og Reykjavík. En ég fæ ekki séð hvaða sjónmengun ég hef gert...
Talandi um sjónmengun, ég var einmitt að gagnrýna sjónmengunina hans Gvendar Skrítna í nýju félagsriti!
Ég held að Ívar hafi ekki valdið neinni sjónmengun. Það voru Gvendur skrítni og nú síðast Dúddi, sem það gerðu.
Uppátæki Dúdda olli því m.a. að ég komst ekki inn á spjallsvæðið Menning og menntir. Ég sé hins vegar að hann hefur nú bætt ráð sitt og hreinsað upp eftir sig.
Mér finnst að það eigi að bjóða upp á þetta kaffi á Kaffi Blút. Annað væri varla sómandi.
Ég held að fröken Rós sé að tala um ritið sem ber titilinn Umferðarmenninghöfuðborgarsvæðisins.
Nei nei ég var að tala um þetta rit hér :
andskotans helvítisdjöfulsins skrattansekkisens strætó helvítisdjöfulsins drasl
Sem var fyrir nokkrum mínútum skrifað í einu orði.
Áður en að sumir breyttu því í stað þess að viðurkenna hræsni sína.
Já nei sko... ástæðan fyrir þessu er sú að a) ég sá að mér og lagfærði þetta og b) þetta var þegar breytt vegna þess að eldrefsviðbótin sem kynnt var hér innihélt þannig galla að hún stoppaði á félagsritum sem innihéldu tákn og félagsritið hét upphaflega #$%&#&/#%&(#%&(%#/#&%/ Strætódrasl. Það eru ekki nema tvær til þrjár vikur síðan téð langlokunafn var sett inn
Þetta fór alveg framhjá mér en vonandi hætta menn að nota svona fáránlegar fyrirsagnir.
Já var það þetta rit? Auðvitað. Ég man eftir umræðu um það, og bætti meira að segja inn villumeðhöndlun í viðbótina í kjölfarið.
Má ég kóa með líka? Takk fyrir þessu yndislegu gagnrýni. Hvað með að prófa salernispappír næst? Hvað á að nota mörg blöð í einu? Hvernig er réttast að brjóta? Eru þessi mjúku best?
Töfra Stundir öll !
Sum sé, Heiðglyrnir hefur annað hvort haft gríðarleg áhrif á Ísafold eða Ísafold er Heiðglyrnirs evil twin brother [glottir]