Ég er á námskeiði í að verða ofurmjúkur skírteinaður ofanborðs stuðnings tæknikall þá kom umræða um svo kallaða rekla eða Drivers. Hér að neðan fara djókar sem vöknuðu í kjölfarið.
DRIVERS:
• Device Driver: Bílstjóri Bill Gates
• Device Manager: Steve Ballmer, framkvæmdastjóri Microsoft
• Digitally Signed Driver: Nýr bílstjóri sem sótti um á netinu
• Update Driver: Reka gamla bílstjórann og ráða nýjan
• Adjust Digitally Signed Driver Policies: Gera nýjar starfsreglur fyrir bílstjórann sem sótti um á netinu.
• Rollback Driver: Endurráða gamla bílstjórann því hinn var alltaf fullur
• Driver Troubleshooting: Vegakort
Þetta var nú skemmtilegt...
Þá dettur mér í hug:
Memory Resident Driver: Bílstjóri sem er minnugur á hvar fólk á heima.
Virtual Device Driver: Bílstjóri sem er næstum því orðinn löglegur.
Windows Driver Foundation: Dekk bíls bílstjóra sem keyrir út glugga.
Windows Display Driver Model: Nektarmódelið sem hangir í glugga bíls bilstjóra.
Uniform Driver Interface: Staðlaðar reglur um einkennisbúninga bílstjóra.
Unweryfied driver = Óræður bílstjóri hugsanlega hættulegur og gæti átt til ofsaaakstur.
Gvöööööööööð. Brandari um Bill Gates er ekki brandari fyrir fimmaura, maðurinn er einfaldlega það ömurlega leiðinlegur og stórhættulegur karakter. Reynum að semja eitthvað skemmtilegt. Hvað varð um alla kóbaltsbrandarana?
Djöfull langar mig að segja Úlfamanninum að halda ká-joð. En ég ætla ekki að gera það, þar sem ég er að hundsa hann að eilífu.