Í félagsriti sínu um hver eigi rétt og hver ekki ræðir Kristján IX um ýmsa þjóðfélagshópa sem hann telur ekki eiga það skilið að dvelja hér á landi. Ég ætla ekki að leggja beint út frá hans skrifum og allra síst að taka hans pól í hæðina því ég get ekki verið meira ósammála því sem hann segir.
Fyrir skömmu tilkynnti ég hér hástöfum og hef rætt það mikið að ég hafi misst vinnuna. Það ástand hefur verið ákaflega niðurdrepandi en ég hef reynt að taka þessu létt og brosa í gegnum tárin. Á ákveðnum tímapunkti hugsaði maður á þann veg að ef ekki væri fyrir útlendingana sem staddir eru hérlendis við vinnu þá væri maður líklega löngu kominn með vinnu. En þessi hugsun varði kannski í korter.
Ég hef unnið ýmis konar störf í gegnum tíðina og má þar nefna verslunarstörf í matvöru- og sérverslunum. Bílstjórastörf hjá heildverslunum og strætó. Þjónustufulltrúastarf hjá fjarskiptafyrirtæki. Prentsmiður og grafískur hönnuður hjá fjölmiðlum og auglýsingastofu. Liðsmaður fatlaðs manns. Bókavörður í bókasafni. Nefndarmaður í pólitískt skipaðri nefnd í Hafnarfirði á vegum meirihlutans. Svona gæti ég haldið áfram all lengi. En staðan í dag er sú að ég var ráðinn til starfa í gær hjá fyrirtæki í þekkingariðnaðinum. Ég græt það alls ekki.
Ef litið er yfir sviðið mitt þá get ég raunverulega þakkað pólverjum, tælendingum, þeldökkum og konum það að ég skuli hafa fengið vinnu í svo mikils metnu fyrirtæki og raun ber vitni. Pólverjarnir halda áfram að keyra strætó og veit ég að einn slíkur tók við minni leið. Takk fyrir það! Tælendingarnir og þeir þeldökku hafa sést í miklum mæli í matvöruverslunum og verð ég að segja að í þeim verslunum sem þau vinna er umgengnin betri en oft áður. Einnig hefur sést til þeirra sem liðsmanna fatlaðra. Konur vinna í öllum þessum störfum sem ég hef áður nefnt og er ég sérstaklega stoltur af þeim konum sem hafa brotist út úr hlekkjum bælingar og drifið sig í eitthvert nám, hvort sem það er í háskóla, iðnskóla eða meirapróf.
Nú gæti einhver lagt skrif mín út á versta veg og hugsað að ég væri að mæla skrifum KIX einhverja bót, en svo er aldeilis ekki. Ég fagna því að þeir sem koma hingað að vinna geti fengið störf og staðið sig í þeim. Ég fagnaði því innra með mér að minn nýji yfirmaður verður kona. Við erum einfaldlega komin inn í ferli í okkar samfélagi þar sem ekki er lengur spurt um hvort maður er með tippi eða ekki. Ekki er spurt hvort einhver sé sólbrúnni en annar. Ekki er spurt hvort menn séu með öðruvísi augnsvip. Ekki ert spurt um háralit. Það fer reyndar eftir atvinnugreinum hvernig hlutverkum er skipt en sú stefna að hvítir karlmenn ráði og hafi hvíta karlmenn í efstu stöðum sýnist mér vera á hröðu undanhaldi. Launamuninn þarf vissulega að leiðrétta í efstu stöðum en jafnræði er komið að mestu í neðri stigum launastigans.
Ég lýsi því yfir hér og nú að skoðanir þær sem Kristján IX hefur boðað og ært alla með þykja mér afskaplega grunnhyggnar og fávísar. Með auknum samgöngum og samskiptum milli landa er óhjákvæmilegt að fólk af öðrum uppruna flytjist hingað og er það vel. Með aukinni tækni, námsframboði og lögbundnum réttindum er ekki hægt að mismuna fólki lengur á grundvelli kyns, húðlitar, raddstyrks eða skónúmers.
Undanfarna mánuði hafa all nokkrir komið að máli við mig og orðað það við mig að bjóða mig fram í prófkjöri til Alþingiskosninga. Ég hef legið undir feldi og gefið það sterklega í skyn að ég myndi taka þeirri áskorun. Í ljósi þess að ég er að hefja krefjandi starf hjá nýjum vinnuveitanda þá hef ég ákveðið að sitja hjá í þessari umferð. Ég mun hins vegar reyna að vinna í bakvarðasveitinni í mínum flokki og vinna þar meðal annars að þeim málum sem ég hef hér reifað.
Mikill maður mælti eitt sinn I HAVE A DREAM. Margir hafa sagt þetta en aðeins einn hefur sagt það svo heimurinn hefur tekið eftir. Minn draumur er sá að þú lesandi góður þurfir ekki að hugsa sem svo að ég sé enn einn karlfauskurinn að reyna að réttlæta eigin skoðanir fyrir konum. Minn draumur er sá að ég verði jafn þér.
Ég á mér draum og vil að hann verði að veruleika.
Ágætt alveg hreint - þú veist það samt að það eru fleiri kour en karlar sem útskrifast með háskólapróf - ekki satt? Þeim fer líka fjölgandi sem taka meirapróf, iðnskólapróf o.s.frv. Þið eruð einfaldlega að dragast aftur úr og ef þróunin verður jafnör áfram þá verðið þið, eftir kannski svona 50 ár, heima að snýta og skeina meðan við stjórnum landinu - og það var nú kannski ekki markmiðið með baráttunni.... Þið verðið því að herða ykkur!
Þá má eiginlega segja að við verðum Sauðir í krafti kvenna eins og ég hef nefnt áður. Nú hefst erfiðasta skeiðið. Sá tími sem það tekur að viðhalda fengnu ástandi og geta aðeins lagfært það.
Til hamingju með starfið, Ég hef verið atvinnulaus og þurft að ráða mig í vinnu sem ég hef ekki haft áhuga á en ef ég hefði hafnað þeirri vinnu hefði ég mist rétt á atvinnuleysisbótum. fyrir vikið varð atvinnurekandinn að reka heim tælenskann starfsmann sem vildi vinna þessa vinnu. mér fanst þetta ósanngjörn og ill meðferð á erlendu vinnuafli. það er líka ósanngjarnt þegar kona sækir um starfað útiloki það karlmenn frá því að eiga möguleika á því starfi.
Því miður eru skrif Kristjáns IX ekki þau einu sem fara í taugarnar á mér, Ég vil minna á að stutt er síðan börnum var meinað um skólagöngu út f tímabundnu kennitöluleysi sem auðvelt var líta framhjá. ef við ætlum að leyfa þessu fólki að taka þátt í okkar þjóðfélagi gerum við það gegnum börnin þau fæddust fordómalaus. og leyfum þeim áfram að vera það.
Ég hef mjög gaman af því að mála þeldökka. Ég vildi vera þeldökkur þegar ég var lítill.
Málið er að The Illuminati eru að reyna að útrýma menningu og lifnaðarháttum fólks, og því flytja þeir það milli mismunandi svæða á hnettinum. Vissu allir að menning hvers og eins þjóðflokks skiptir máli og að varðveisla menningar og hefða skiptir máli þá væri ekki til neitt sem heitir kynþáttahatur og það væru engir landamæraverðir neins staðar.
Byrjum þau okkar sem eru að skrifa hér sem eru stödd erlendis í augnablikinu á að fara fram á að landamæravörðum sé sagt upp án þess að eins heims stjórn sé stofnuð.
Offari: Sammála með þetta með kennitölurnar.
Það er bara út í hött að láta það bitna á börnunum að einhver skrifstofuvinna fór ekki eins og átti.
Hvernig er þetta svo útskýrt fyrir börnunum?
Nei þú mátt ekki fara í skólann því að þú ert ekki með kennitölu... svona tölustafi.. sem þýða í raun og veru ekki rassgat fyrir neinn nema ríkið.
Til hamingju með nýja starfið Ívar, og gaman að sjá svona jákvæð skrif hérna til tilbreytingar.
Til hamingju með nýja starfið Ibbi og gangi þér vel.
Þetta fjelagsrit þitt er umhugsunarvert og margir góðir punktar í því sem vert er að skoða.
Ertu í Samfylkingunni?
Kannski partur af brjálaða Uj genginu í Hafnafirðinum fuss um svei. Hérna annars finnst mér þetta góð grein og orð í tíma töluð. Sérstaklega eftir þessa hræðilegu grein Kristjáns.
Af kennitölum
Prívat og persónulega finnst mér að aðeins hlutir en ekki fólk ættu að hafa kennitölu, þ.e.a.s. ef sá sem selur eða framleiðir hlutinn vill að hann sé með kennitölu.
Siggi: Jú ég er samfylkingarmaður en nei, ég er ekki í Ungum Jafnaðarmönnum.
Vjer óskum yður formlega til hamingju með nýja starfið. Jafnframt endurtökum vjer þau orð vor úr athugasemd við annað fjelagsrit að án Pólverja o.fl. nýbúa/innflytjenda væri hjer meiriháttar vandræðaástand sökum mikils skorts á vinnuafli. Margir punktar í þessu fjelagsriti sem vjer erum sammála.
Þú aumi Ívar Sívertsen. Líttu þér nær. Fengu pólverjafíflin ekki bestu leiðirnar þegar þú keyrðir strætó? Þeir stela störfum og lækka laun. Helvítis útlendingapakk!
Mér hefur nú sýnst að við íslendingar höfum leitast við að verða þeldökkir síðustu ár ... Ef að málið snýst um það ... Við kallarnir reynt að vera mjúkir ... Ég hélt að svona viðhorf - "grín"?! - hefði horfið eftir að fólk fór að þrífa sig og bursta í sér tennurnar.
Án erlends vinnuafls væri fiskverkun hér í lamasessi, nýríkir íslendingar sem og aðrir þyrftu að bíða til 2025 eftir að búið væri að byggja húsin þeirra, McDonalds myndi loka (Sem væri að vísu vel en það er önnur saga)
Kringlan myndi drabbast niður í sóðaskap, lengri bið á kassa í bónus, lengri bið á dekkjaverkstæðinu, vegaframkvæmdir myndu tefjast enn frekar, stórfyrirtæki einsog Flytjandi og landflutningar væru lengur að skila af sér sendingum, Osta og smjörsalan myndi ekki anna ostaeftirspurn, eins með mjólkursamsöluna, það væri mjólkurvöntun. Norðlenska og ferskar kjötvörur og SS sem eru stærstu kjötkaupmenn landsins gætu ekki mætt eftirspurn okkar eftir kjöti og lífið væri bara hreinlega leiðinlegra án erlends vinnuafls.
Þannig að kristján, Éttu úldinn hund !