— GESTAPÓ —
Í uppáhaldi:
Félagsrit:
Ívar Sívertsen
Friðargæsluliði.
Heiðursgestur og  skáldjöfur.
Dagbók - 9/12/05
Hevítisandskotans-djöfulsins og allir hans vinir!

Ég fór til læknis áðan því ég hef verið krankur síðan á mánudag. Ég hef líka verið með verk í bakinu og því ekki til að bæta ástandið. Ég fékk eitt sinn brjóskútbungun í hrygg og þurfti meðhöndlun vegna þess.

Í vinnunni sem ég hef stundað síðan í byrjun ágúst þá þarf ég að bera hluti og suma hverja all þunga. Síðan hef ég verið að aka sendiferðabíl með þessa þungu hluti og afhent þá við ýmsar aðstæður. Læknirinn sem ég fór til sagði mér hreinlega að best væri að ég skipti um vinnu til þess að ég þyrfti ekki að eyða tíma á sjúkrahúsi og á lyfjum. Þar með er líklega lokið tíma mínum sem atvinnubílstjóri. Ég þarf þar af leiðandi að leita mér að starfi í því fagi sem ég hef menntað mig til, prentsmíð - hönnun á grafísku sviði. Ég er hreint ekkert sáttur við þetta ástand því mér leiðist að skipta um vinnu.

   (129 af 287)  
9/12/05 01:01

Galdrameistarinn

Ég mundi taka mark á lækninum eins og skot ef þú villt ekki enda eins og ég er stundum.
Ég vakna í spreng og þarf að komast á kamarinn en þar sem skrokkurinn er undirlagður af verkjum sem best er lýsa á þann hátt að það er eins og sandur sé í öllum liðum og bakið fast, þá hleypur maður ekkert niður þröngan hænsnastiga si svona til að komast á dolluna.
Finndu þér annað starf í hvelli kall.

9/12/05 01:01

Offari

Ef þú getur prentað seðla ertu á grænni grein.

9/12/05 01:01

Offari

Með von um góðan bata.

9/12/05 01:01

Jóakim Aðalönd

Notaðu tækifærið og hættu þessum akstri Ívar minn. Hann fer ekki vel með skrokkinn. Fáðu þér skrifstofuvinnu og gakktu eða hjólaðu í vinnuna þér til heilsubótar. Það ætla ég að gera í nýju vinnunni. Alla vega ætla ég að stunda einhverja líkamsrækt með, því svona kyrrseta er ekki góð til lengdar.

Ívar Sívertsen:
  • Fæðing hér: 11/8/03 12:21
  • Síðast á ferli: 22/6/23 12:25
  • Innlegg: 12356
Eðli:
Ákaflega fagur ungur maður með mikinn metnað og kann sig á allan hátt. (hann lærði það á kvöldnámskeiði hjá Bréfaskóla SÍS)
Fræðasvið:
Ég veit allt, get allt og kann allt en fer rosalega leynt með það og kann að fela það vel.
Æviágrip:
[i]Fæddur að handraðanesi á sóðbrókarströnd í Ristilfirði. Lést skömmu síðar. Reis upp frá dauðum eftir korter og bað um brauð. Eftir það var ekki aftur snúið. Hann hefur síðan verið ánetjaður Baggalúti og virðist ekkert vera að skána.Hann fékk sér fæðingarblett á kinnina skömmu áður en hann lét taka hann af sér. Hann hló skömmu eftir það. Ívar hefur nú hafið búskap á Eyðibýli á Auðkúluheiði. Hann hefur aldrei verið við kvenmann kenndur en hann er all oft kenndur. Sívertsenættin hefur lýst hann útlægan og krafist þess að hann afsali sér ættarnafninu og taki upp nafnið Nestrevís en hann hefur margsinnis hafnað því. Ef þú ert að lesa þetta ennþá þá ert þú líklega jafn skemmdur og Ívar... ef ekki skemmdari barasta. Ertu enn að lesa? Nei nú læt ég leggja þig inn á geðdeild! Það er ekki heilbrigt að lesa svona langt! Viltu hætta þessu! HÆTTU SEGI ÉG!!! Ef þú ert enn að lesa og finnur ekki fyrri vott af þreytu þá skal því bætt við að þegar Gestapó var opnað í árdaga þá gerðist Ívar fastagestur hið snarasta. Hann hefur æ síðan verið einn virkasti gestapóinn og ritað mikið. Hins vegar er ljóst að hann kemur til með að auka viðveru sína á Gestapó á komandi árum því nú hefur hann komið sér í innivinnu við tölvu. Ertu enn að lesa þetta? ÉG held svei mér að þú ættir í alvöru að leita þér hjálpar. Ég er löngu hættur að lesa þetta... ég veit ekki einu sinni hvað stendur eftir línu þrjú. En hvað um það. Síðan hafa mörg vötn runnið til sjávar og eiginlega svo mikið að það er ekkert salt eftir í sjónum, það lagði á flótta upp í ár og stöðuvötn þannig að nú er sjórinn pakkfullur af ferskvatnsfiskum og ferskvatnshvölum. En það bar til um þessar mundir, að boð kom frá Megasi keisara, að skrásetja skyldi alla drykkina. Þetta var fyrsta skrásetningin og var gjörð þá er Gylfi Ægisson var blandstjóri í Stúdjó Sýrlandi. Fóru þá allir til að láta stjaksetja sig, hver til sinnar borgar. Þá fór og Rúnar Þór úr Litlu Hraunum frá Hótel Borg upp í Morgunblaðshús, til borgar Davíðs, sem heitir Hádegismóar, en hann var af ætt og kyni Davíðs,að láta skrásetja sig ásamt Maríu hjákonu sinni, sem var þung. En meðan þau voru þar, kom sá tími, er hún skyldi verða léttari. Ældi hún þá bjór sinn frumdrukkinn, sagði hann vondan og lagði hann í fötu, af því að eigi var romm handa þeim í gistihúsi. En í sömu byggð voru barþjónar úti í haga og gættu um nóttina drykkja sinna.Og vörður laganna stóð hjá þeim, og dýrð Áfengis ljómaði kringum þá. Þeir urðu mjög fullir, en löggimann sagði við þá: Verið óhræddir, því sjá, ég boða yður mikinn fögnuð, sem veitast mun öllum lýðnum: Yður er í dag afréttari færður, sem er Hristur og hrærðu, í Mogga Davíðs.Og hafið þetta til marks: Þér munuð finna gubb vont, lagt í fötu. Og í sömu svipan var með löggumanninum fjöldi himneskra hljómsveita, sem lofuðu stuð og sögðu: Dýrð sé stuði í Hádegismóum, og fiður á Davíð og mönnum sem hann hefur velþóknun á. Þannig hljóðar hið heilaga stuðspjall. Og þegiðu svo!