Þann 4. fwbrúar fór ég í flugstöðina í vík þá er kennd er við Kefli og hóf ferð til Monster city!
Ferðin frá vík kefla gekk vel þar til að lendingu var komið. Í víkinni hafði ég gert vörukönnun á miði þeim er við ísland er kenndur, Thule. Hann var í lagi og þá þótti mér við hæfi að skreppa inn í eina flugvélina sem þar var stödd. Ég settist þar og bað um að fá að smakka kjúklingasalat sem var auðsótt mál fyrir greiðslu úr sjóðum spillingaráðuneytisins. Til að geta torgað því var dreypt á dýrasta rauðvíni um borð. Ég innti yfirfluffu um borð hvort ekki væri hægt að fá dýrt koníak líka þá bauðst hún til að útvega það. Svo áður en ég vissi af var ég staddur á Biðstaðarflugvelli (stansted) Lundúnaborgar. ÉG taldi mig heppinn að komast óséður í gegnum það hreysi sem og gryfju þá er menn nefna FMO eða Flieghafen Münster/Osnabruck (skrímsli/ostabrot) eða eitthvað í þá áttina. Samnjósnari minn (Doktorinn sem er nýliði hér) ætlar að veita mér innsýn í þá vopnastarfsemi sem hér fer fram. Ég sé ykkur vonandi á hittingi en ekki í minningargrein!
Ívar! Þú ert ekki með kreditkort spillingaráðuneytisins, það varð eftir hér! Í guðanna bænum ekki eyða meiru!
Já og hafðu engar áhyggjur af mér. Offari passar mig. Hann er líka búinn að skúra...
Hann er ábyggilega að þvælast í Tom-Rink-Strasse. Og við vitum öll hvernig hús eru þar.
[Blikkar]
Haha! Þetta er fyndið, ég var í Garmisch í dag, ekki 30 km. frá Münster (en í Bayern, ekki Austurríki).
[Klórar sér í höfðinu]
Ívar er í Münster í norðanverðu Þýskalandi. Ekki í Bayern og hvað þá heldur Austurríki.
Ach so! Ég þekkti bara eitt munstur, í Austurríki.
Svei ófrumlegum Týrólum og Germönum!
Svei öllum óígrunduðum framlögum til umræðna!
Játs, það er einmitt í Münster í norðanverðu Þýskalandi sem Tom-Rink-Strasse er. Og við vitum öll hvernig hús eru þar. [Blikkar]
Þarfi, þú hefur ekki lesið nógu vel. Dr. Frankenstína fylgir honum þess vegna talar hann um skrímsl.
Við skulum bara vona að það sé gæludýrageymsla á hótelinu því þurfi hann að taka hana með inn á herbergi verðum við að fylgjast vel með, breaking news alerts.
Ah.. Reeperbahn í Hamborg, vekur góðar minningar og er staður sem hægt er að mæla með fyrir menn sem hafa gleymt Hexíu sinni en eru með kortið hennar.
Hexía veri með þér vinur. hvert sem þú ferð og hvað þú nú gerir.
Pah! Ef Ívar hefur gleymt mér þá geta skrímslin bara átt hann.
Ég hef samt á tilfinningunni að hann hafi nú ekki gleymt mér.
Fagri: Þú færð ekkert kakó!