Nú er komið að þeim tímapunkti á árinu þar sem menn fara að smíða sér væntingar og áætlanir. En svo mistekst það allt í fyrstu viku.
Ég hef lengi haft þann sið að setja mér óraunhæf markmið í lífinu. Ég hef ætlað mér að sigra heiminn með einhvers konar viðskiptahugmyndum sem ekki eiga sér einu sinni möguleika. Ég hef ætlað mér að breyta líferni mínu svo drastískt að ég lægi örendur eftir. Ég hef ætlað mér að gera þetta og hitt svo um munar og oftast verður ekkert úr.
Framundan er hinsvegar stórmót. Þar keppa menn af miklu kappi og hörku. Þetta stórmót blæs manni stolt í brjóst og vilja til að skara fram úr. Hvaða stórmót er þetta? Jú, ÁRAMÓT. En í hverju er keppt? Það er keppt í heitstrengingum, loforðagjálfri, áti, drykkju, að toppa sprengjuverk nágranna og hver á flesta ættingja liggjandi áfengisdauða ofan á notuðum skottertum.
En hvað eru áramót? Það er hugtak og tilefni til ofneyslu á öllum sviðum innbyrðingar og ljósadýrðar. Hverju eyðir þú lesandi góður í sprengjur fyrir þessi áramót? Ég eyði ekki miklu. Kannski sjöþúsundkalli í eina tertu. Ég vil nefnilega líka sjá hvað hinir eru að gera. Ég þekki til manna sem skjóta rakettum fyrir hundruð þúsunda og þegar upp er staðið þá þurfa þeir að spyja viðstadda hvernig showið hafi verið.
En hvað gætu áramót hins vegar verið? Ég hef oft vel fyrir mér tilgangi þess að halda upp á það að nýtt ár gengur í garð. Sumir kvíða ávallt nýju ári og horfa fram á skuldir, heimilisvandræði, fíknir eða jafnvel linnulausa óumbeðna einveru. Aðrir sjá fram á betri tíð með mittisummálsminnkun og fleiri krónur í budduna. Enn aðrir sjá bara fram á Status Quo í sínum málum (og á ég þá ekki við að sú aldna hljómsveit fari að garfa í manns einkamálum).
En áramótum er hægt að snúa upp í tóma vitleysu. Ef þú ætlar að kaupa þér árabát þá þarftu árar. Best er að steypa þær úr plasti og til þess þarftu mót, ÁRAMÓT!
Gangið hægt um gleðinnar dyr elsku dúllurnar mínar, róið ykkur leið að nýju ári.
Gleðilegt ár og takk fyrir þau liðnu. Megi framganga okkar á Gestapó vera enn veglegri á nýju ári.
Þetta var svo væmið að ég ældi. Sem er á sinn hátt helvíti vel af sér vikið.
Þá fæ ég mér bara stærri mótor og kaupi hlut í trillu.
E.S. Pabbi minn er sterkari en pabbi þinn.
Buenos Aires? Onkel J. hefur hingað til kallað Kristneshælið ýmist Caracas eða Bogota. Ber okkur að skilja þetta sem svo að vist menn hafi fengið bæjarleyfi til Akureyrar eða er bara Hreinn Loftsson í heimsókn?
Þú ert góður maður Ívar og þarft ekki að lofa neinu
nema að halda áfram með það Gleðilegt nýtt ár fyrir þig og Hexíu og öll börnin ykkar og annara
Gleðilegt ár ! (bæði opinber og formleg kveðja úr forsetahöll Baggalútíu)
Þakka þér fyrir pistilinn Ívar.
Það er ekki laust við að margar hugsanir svífi að manni (svona eins og áfengisvíman) um áramót.
Ný verkefni, nýtt fólk, ný markmið, ný tækifæri, nýtt líf.
Skál fyrir ykkur öllum og gleðilegt nýtt ár!
Þar sem margir púkar (árar) koma saman þar er áramót... En gleðilegt nýár allir baggalútar.