Nú er desember eins og flestum er kunnugt. Þá þurfa allir að fara í bæinn.
Ég hef orðið var við það undanfarið að ökumenn eru hættir að haga sér eins og ég lýsti í fyrri pistli mínum um umferðarmenningu höfuðborgarsvæðisins. Ég fékk að kynnast því áþreifanlega í gær að nú er það frumskógarlögmálið sem gildir... eða ætti ég kannski að segja pelsa- og hattalögmálið. Það er hreint ótrúlegt að sjá hvað íslendingar breytast í miklar skepnur undir stýri í desember. Menn svína hver á annan og allir eru að flýta sér meira en góðu hófi gegnir. Ég þurfti að hafa mig allan við á vaktinni í gær að lenda ekki fyrir stórum heppum sem og Smart-bílum. Meira að segja vörubílstjórarnir með fullan pall af einhvers konar jarðvegi voru í stresskasti. Mér leið ekkert sérlega vel í umferðinni í gær. Það er nauðsynlegt að taka því rólega í umferðinni því að alveg sama hvað gerist þá koma jólin klukkan 18 þann 24. desember. Takið lífinu með ró.
Fér á Sómastað er nú allt komið í sóma því umferðin þar tilheyrir að mestu atvinnutengdri starfsemi. Hér eru allir farnir í Jólafrí og ró komin á. Á von á að þetta róist hjá þér síðdegis á aðfangadag nóttu þessa að aka í rólegaheitum þá.
Það er til tillitssemi í umferðinni. Ég varð til dæmis vitni að því í gær að það var kona að fara yfir götu og þá kom hvítur Saab aðvífandi og það skipti engum togum að ökumaður bifreiðarinnar - hann hreinlega stoppaði fyrir konunni.
Hann gerði það.
Ja... reyndar bakkaða hann svo aðeins á hana á eftir en það var bara vegna þess að hún hafði ullað á hann á Grettisgötuinn þarna fyrr um daginn.
(Fjandinn sjálfur, þessi texti er ekki bara stolinn, heldur er ég búinn að muna þessa romsu í 25 ár.)
Það er ekkert stress hér í umferðinni í Mendoza. Reyndar er alltaf ákveðið stress að koma sér yfir götu, en ökumenn virðast ekkert stressaðir, enda virðast þeir eiga forgang yfir gangandi hér í Ameríku hinni syðri...
Hvað með leigubílstjórann sem ég dúllaðist á eftir allan Eiðisgrandan í morgun? Var hann að taka tillit til hámarkshraða og halda sig innan hans (50km/klst) eða var hann að sýna öllum í halarófunni á eftir lítilsvirðingu með því að keyra ekki eins og flestir gera? Á þeirri merkilegu götu er nefnilega oftast ekið á yfir 70 km hraða?