Ég var á leið til vinnu þegar klukkuna vantaði tuttugu mínútur í sex í morgun og lenti í voðalegu atviki.
Þegar ég hafði verið vakinn, klætt mig, skellt inn óhroða á Gestapó og fengið mér að éta klæddi ég mig í útifötin og skó og gekk áleiðis til vinnu minnar. Þar sem ég geng venjulega þá eru tröppur niður í næstu götu en við hlið þeirra er bara lítil grasbrekka. Tröppurnar hafa undanfarið verið notaðar sem brekka fyrir snjóþyrsta líkt og grasbrekkan. Ég ákvað þá að ganga frekar í snjónum í grasbrekkunni svo ég tæki ekki flug og endaði á hausnum í tröppunum. Keikur steig ég út á grasbrekkuna og hugsaði með mér hvað ég væri nú ofboðslega snjall og um leið og ég hugsaði snjall þá skrikaði mér fótur og ég rann til og datt kylliflatur á rassinn... ofan á vinstri fótinn. Ég var skíthræddur um að hafa brotið löppina en svo var ekki. Ég gekk áfram til vinnu og fann ekkert fyrir þessu. En svo þegar líða tók á morguninn þá fór ég að finna fyrir verkjum í vinstra kálfa. Ég hef þá líklega tognað þar. Ég mæli sem sagt ekki með því að renna á rassinn! Það atvik fær þó eina stjörnu á þeim forsendum að ég slasaðist ekki.
Þetta verður örugglega í góðu lagi, Ívar minn, svo framarlega sem enginn hafi séð til þín. Sært stolt er mun lengur að gróa en líkamlegir áverkar.
Skoðar jarðskjálftakort veðurstofunnar og kannar hvort einhverjar hræringar hafi verið á umræddum tíma í Hafnarfirði.
Ég fór á inniskóm áðan í sparísjóðinn til að leysa út kaupréttargróða og datt bara aldrei á leiðinni, hvorki til eða frá. Þú ættir að fá þér mannbrodda.
Maður verður bara að passa sig að vera ekki að labba í þessum bévítans brekkum því þá er voðinn vís.
Góði Ívar . Hér hjá okkur svíum á vesturströndinni hefur snjórinn ekki sínt sig og verið um tíu til fimtánstiga hiti. Vonandi er þettað bara smá blánaður á bottninum og að besti strætókallinn í ríkinu geti haldið áfram að keyra samborgaran hring eftir hring án þess að sytjandinn hái þér.
sitjandinn er í góðu lagi... það er vinstri fóturinn sem er að plaga mig.
Ívar, ef þú værir ekki maðurinn sem settir „pompa á rassinn” lagið inn í hausinn á mér fyrir nokkru síðan þá hefði ég ekki hlegið næstum eins mikið að þessu!!!