Nokkrir gestapóar hafa látið það vera að mæta duglega til skrafs og ráðagerða við okkur hin. Hvað er til ráða?
Ég var að gamni mínu að fara yfir heimavarnarliðslistann og sá þá eftirfarandi upplýsingar:
Frelli: Síðast á ferli: 22/09/05 - 17:37
Haraldur Austmann: Síðast á ferli: 03/10/05 - 18:46
Tinni: Síðast á ferli: 03/10/05 - 21:43
Blástakkur: Síðast á ferli: 08/01/05 - 18:19
Plebbin: Síðast á ferli: 08/08/05 - 17:21
Bjúrókrat: Síðast á ferli: 27/09/05 - 1:35
Muss S. Sein: Síðast á ferli: 08/06/05 - 20:29
ruglubulli: Síðast á ferli: 14/09/05 - 22:28
Síra Skammkell: Síðast á ferli: 14/11/04 - 4:47
Þarna eru nokkrir heiðursfélagar sem lítið hafa látið fyrir sér fara að undanförnu. Allt eru þetta miklir og góðir Gestapóar sem hafa gert Gestapó að betri stað. Endurheimtum þá sem fyrst.
<i><b>Farið hefur fé betra</b></i> hebbbbði nú hún langömmusystir mín sagt. En, því er ég nú bara alls ekki sammála.
Ohh, hvar er hann faðir minn niðurkominn... [Dæsir mæðulega og lítur út um gluggan]
... og allir hinir...
Já, það er sjónarsviptir af þessum heiðursgestapóum. Við verðum samt að virða ákvarðanir þeirra og njóta allra þeirra nýju sem lagt hafa leið sína hingað í útópíuna.
Skál!
Ég vil sérstaklega taka undir með háttvirtum gestapóa, Jóakim Aðalönd. Tel ég hann hafi hitt naglann rækilega í höfuðið.
Skál.
-