Davíð ætlar að hætta. Heppinn?
Birgir Íslefur Gunnarsson hafði beðið um að hætta áður en ráðningartíma hans lauk, ríkisstjórnin varð við beðini hans í dag. Heppinn?
Geir Hilmar Haarde varð utanríkisráðherra í dag vegna þess að hann hefur stefnt hátt í pólitík. Heppinn?
Árni Mathiesen varð fjármálaráðherra í dag vegna þess að Geir Hilmar Haarde stakk af í utanríkisráðherraembættið. Heppinn?
Einar Kristinn Guðfinnsson varð sjávarútvegsráðherra í dag og vék úr stóli þingflokksformanns. Heppinn?
Davíð Oddsson tilkynnti í dag að hann ætlaði að hætta í stjórnmálum þann 27. september og taka við bankastjórastól í Seðlabankanum? Heppinn að sú staða losnaði?
Ég held að þetta sé allt saman ein alls herjar refskák sem var ákveðin þegar Davíð og Halldór skiptu um stóla. Þessir jólasveinar ætlast til þess að við trúum því blákalt að tilviljun hafi ráðið því að Birgir hættir í seðlabankanum einmitt akkúrat þegar Davíð ákveður að tilkynna brotthvarf sitt úr stjórnmálum. Aular!
Hver er skandallinn?
Ég stórefast um að þessir menn ætlist til þess að fólk haldi að þetta hafi verið tilviljun. Það er hreinlega jólasveinalegt að halda virkilega að þetta sé eitthvert skuggalegt samsæri.
Þetta eru bara pólitísk kaup á eyrinni eins og vanalega. Óvenjusmekkleg meira að segja, aldrei þessu vant.
Nei þettað var engin tilviljunn. þó þótti mér verst að heyra Davíð velja erfingja sinn með að segja
að síðasta athvæðagreyðslan hans irði að kjósa þennan Geirfugl. Harða
Já Haku en þó þetta sé smekklegt þá fannst mér samt skítugt að Birgir í sleif skyldi allt í einu tilkynna brotthvarf núna, klukkutíma áður en dabbi lætur vita af sínum áformum.
Ég sé ekki skítinn. Gamall pólitíkur (Birgir) tilkynnir afsögn og miðaldra pólitíkus tekur við. Þetta er bara gamli góði skíturinn.
Seðlabankinn er enn elliheimili gamalla pólitíkusa. Það er hneykslanlegi skíturinn, ekki skipti á skít.
Klukkutíma áður? Þá var þetta bara óvenju vel smurð atburðarrás. Svona eins og í lok Godfather.
En mér fannst bara rétt að minnast á þetta... segirðu ekki bara allt fínt annars?
Þetta er allt ein stór skemtileg skák. Bíð spenntur etir næstu hrókeringu og jafnvel eftir því að einhver fórni biskup. Skák!
Neinei, hann leggur augnbrúnirnar á hilluna og spókar sig á Kanarí. Hann hefur efni á því blessaður eftir að hafa verið heila eilífð sem sýndarbankastjóri sem gerði ekki mikið annað en lesa það sem hagfræðingarnir höfðu skrifað handa honum.
Já sem betur fer gerði hann ekki mikið og ég vona að Davíð fari ekki að skipta sér að Seðlabankanaum að neinu ráði.
Það er reyndar nokkuð stór hætta á að hann fari að hafa sínar meiningar á hlutunum. Mér virðist Davíð ekki vera svona maður sem hefur gaman af því að ydda blýanta í lengri og skemmri tíma. Greyið Seðlabankamennirnir munu hafa fullt í fangi með að halda huga hans frá peningastefnunni.
Ef ég væri þeir myndi ég setja nokkrar pappírsarkir á skrifborðið hans og vona að hann fari að dunda sér við skáldsöguskrif í vinnutíma.
Það var gaman af honum í útvarpi Matthildar
svo hann ætti vel heima hér
Mér finnst við ættum að bjóða honum á Baggalút.
Enter og félagar gætu jafnvel andað í sig kjarkinn til að bjóða honum að gerast pistlahöfundur á Baggalúti, þar sem hann skrifar um daginn og veginn af sinni alkunnu léttúð og gamansemi.
Dabbi verður yfir blýantsnagari. Hlakka til þegar hann fer að gera at í ríkisstjórninni og fikta í vöxtum og vísitölum. Frysta gjaldeyrisforða Baugsfeðga og ráða Sullenberger sem aðstoðarnagara
Farið bara ekki að segja að vinur minn Geir H. Haarde eigi ekki allt gott skilið. Þar er maður sem vinnur hart að því að gera sitt besta. Í raun tel ég hann vera einn þann skásta sem sést hefur í íslenskri pólitík í langan tíma.
(Tek það fram að yfirlýsingar þessar hafa ekkert að gera með flokkshylli mína í eina né aðra átt.)
-
Ansans tilhæfulausu ásakanir eru þetta. Hér er ekkert samsæri á ferðinni. Þessir mætu menn hafa ekkert að fela. Ekkert að fela.
Þið ættuð að skammast ykkar fyrir að vera með svona tilhæfulausar aðdróttanir. Svona gera menn ekki.
Það þarf ekki að gera neina byltingu.
En af hverju var staða seðlabankastjóra ekki auglýst, eins og var gert þegar Finnur Ingólfsson komst að því að hann væri besti maðurinn í stöðuna?
Mér finnst þetta svindl...
Heyrið annars. Voru ekki skúringakellingar, hjúkkur og endurhæfingameistarar að hætta í seðlabankanum vegna ljelegs aðbúnaðar og launa? Hver á þá að skipta á kall pokunum?
Ætli þeir verði ekki bara að skiptast á að skipta hver á öðrum... Annars var ég að heyra að Seðlabankinn sé á góðri leið með að verða að DAP (Dvalarheimili aldraðra pólitíkusa) þar sem þeir gera ekkert nema þeim sé sagt það.