Þætti þér lesandi góður ekki sæmilegasta búbót að fá 200.000 krónur í vasann? Ég ætla hér að útskýra hvernig það væri hægt.
Eins og flestir vita þá stendur það til að selja Landsímann. Hafi það farið fram hjá einhverjum er viðkomandi vinsamlegast beðinn að leita sér geðlæknisaðstoðar.
Mikið hefur verið rætt um hvað gera eigi við peningana sem hljótast af sölunni og vilja margir byggja hátækni sjúkrahús, aðrir vilja Sundabraut og enn aðrir vilja fá peningana bara í vasann.
Ef mínir útreikningar eru réttir þá fengi hvert mannsbarn sem er íslendingur 200.000 krónur í vasann ef gróðinn yrði greiddur út. Þar af leiðir að fimm manna fjölskylda fengi milljón. Það munar alla um það.
Hvernig fæ ég þessar tölur? Jú, ef maður deilir sextíu milljörðum með þrjúhundruð þúsund manns þá fengi hver og einn tvöhundruð þúsund. Það myndi greiða upp stóran hluta yfirdráttarlánsins míns!
En lítum nú á hvernig sölunni verður háttað. Það eiga að koma fyrirtæki að þessu sem stjórnvöldum eru þóknanleg. Einhverjir pirrandi púkar eru að reyna að smygla sér inn í söluferlið og tekst það líklega. En að lokum verða það að öllum líkindum Byko /Landsbankinn /Bakkavör sem kaupa Símann.
Íslenskur almúginn má þá sætta sig við það að einhverjir pótintátar í teinóttum jakkafötum fari að græða stórfé á okkur.
Nei takk!
Þetta fyrirtæki eigum við og við eigum að krefjast þess að fá tvöhundruðþúsundkallinn okkar beint í vasann, annað hvort í formi hlutabréfa eða sem innlegg á bankareikning!
Það mætti alveg mín vegna lækka skatta (t.d. tímabundið) um leið og greiða þér, mér og fleirum 200.000 kall í póstkassann fyrir síma þennan. Hins vegar er skynsamlegt að selja þetta ræksni - jafnvel þó nokkrir pótintátar græði.
Það væri auðvitað snilldarlegt, verst að ég er viss um að minn mundi hverfa eins og dögg fyrir sólu.
Svo gæti fólk rottað sig saman og notað 200þúsundkallana sína til að klambra saman spítala.
Smábaggi er svosem ekki bona fide geðlæknir en hann er ábyggilega til í að taka þig í sálfræðitíma.
Ekki kaupa bréf í Símanum. Þið kaupið á toppnum. Ef þið þurfið endilega að kaupa bréf, veljið þá hollenskan banka. T.d. ABN Amro. Enginn er flinkari að græða á bankarekstri en hollendingar.
' svíþjóð seldu þeir síman í hlutabréfum til
fólksins á gjavverði firir nítíu sænskar krónur stykkið fyrir nokkrum árun síðan. Í dag fær maður tæpan tíkall fyrir bréfið. skoðið telía dæmið og lærið af mistökum þeirra
Þú ert bara heimskur bullari. Það er það eina sem allir eru löngu búnir að læra. Jafnvel þó það sé gagnslaus lærdómur. Telia var boðið út á 85 SEK, og drattaðist lengst niður í 22 SEk. Í dag er það á róli kringum 40 SEK
He,he... svo Hakuchi er íslenska útgáfan af Warren Buffett og George Soros! Sá annars frekar kléna mynd um Nick Leeson og Barings Bank. Leeson keypti víst botnlaust með puts á Nikkei indexið. "Boiler Room"nær einna skást þessum spekúlantdraumafíling, en Gordon Gekko klikkar ekki heldur í WS.
Kvikmyndirnar eru greinilega aldrei fjarri. Ég hélt að við værum á leið út í heitar fjármálaumræður.
'eg keypti nú aldrei bréfin hans Björns Rosengrens
enda er ég heimskur mjög. Þú sem daglega lesir
Wallstreet Journal hefur sjálvsagt náð þér í bréfin
og ert búinn að tapa rúmlega hálvri aleigunni
gæti komið sér vel að kaupa símabréf fyrir afgangin og tapa hinu líka
Þú gefst ekki upp í bullinu. Láttu Hakuchi sjá um þetta fyrir þig. Hann hefði losað þig við TLSN á stop/loss í tæka tíð. Annars sýnist mér botninn á leiðinni úr ISK. Hún hefur sigið 6% á einum mánuði gagnvart EUR. Í maí þarf að kaupa USD fyrir 100 millur á markaðinum til að borga af lánum. Þannig að það vantar kaupanda að ISK fyrir þá upphæð. ISK sígur því áfram.
Maður sem ég þekki reyndi að tala við þingmanninn sem var með þetta loforð. Þingmaðurinn var hátt settur hjá Samfylkinguni og í ljós kom að hann vissi að enginn fengi þessa peninga og að þetta væri allt saman della og ímyndun í sér sjálfum. Hann skammaðist sín svo mikið að hann þorði ekki að svara neinu. Ef fólk vill leggja niður Landsvirkjun eða Kárahnjúkavirkjun, hræða alla af svæðinu, og nota til þess aðferðirnar sem ég nota, sem eru algjörlega kostnaðarlausar, og hafa ekkert opinbert eftirlit í för með sér,
matrixs@mi.is