Einn ritstjórnarliða reit merkan pistil um andúð sína á auglýsingum þeim er umferðarstofa hefur birt. Ágætis lesning en nú ætla ég að tjá mig um þetta mál.
Þeir hjá umferðarstofu hafa verið iðnir við að varpa börnum niður stiga og fram af svölum, sem og að henda konum niður stiga. Það lítur mjög illa út og skilur eftir sig spor á sálinni, sérstaklega ef maður á börn sjálfur. Enn fremur sparkar í mann auglýsingasyrpan þar sem börnin tala umferðarmál fullorðinna á leikskólalóðinni, einmitt sérstaklega ef maður á börn sjálfur.
Margir hafa lýst andúð sinni á þessum auglýsingum og skil ég þeirra sjónarmið vel. En án þess að ég viti nokkuð um það þá held ég að um sé að ræða syrpu auglýsinga sem umferðarstofa /auglýsingastofan ætla að fá lögbann á. Þegar búið er að fá lögbann á þær allar þá kemur líklega ein eða kannski tvær auglýsingar sem eru fallegar og krúttlegar en hafa sama boðskap. Tilgangnum náð, athyglin óskipt og menn minnast bönnuðu auglýsinganna sem og þeirra sem fallegar eru. Kannski menn fari þá að hugsa sig aðeins um í umferðinni.
Ég held að þetta sé plottið hjá þeim.
Mér fanst nú hann Gvendur hitta naglann á höfuðið um daginn þegar hann sagði að sér fyndist nú varla að ókurteisi í umferðinni væri slíkt óhemjulegt þjóðfélagsmein að það þyrfti að ráðast gegn því með allsherjarauglýsingarherferð.
Eru þessar stofnanir ekki bara ornar verklausar og dettur ekkert betra í hug að gera?
Þú segir nokkuð Ívar ... þetta er augljóslega mun snilldarlegra og úthugsaðra plott að hálfu Umferðarstofu en mann grunaði. Loksins skil ég stefnu þeirra og markmið til hlítar.
Lómagnúpur: Ég held að dónaskapur í umferðinni sé ekki aðal málið, heldur munnsöfnuður unga fólksins í dag.
Litlir krakkar, rétt ný skriðnir upp úr leikskóla eru með þvílíkan sora og dónakjaft að ég verð hreinlega kjaftstopp!
Þegar svona litlir guttar koma hlaupandi og annað hvort klípa mig í rassinn eða frussa upp úr sér ógeðslegheitunum, þá er komið nóg!
Sammála Tigru, en ég er hræddur um að krakkaskammirnar breyti ekki háttalagi sínu vegna þessara auglýsinga.
Íslenskir foreldrar gera aldrei neitt rangt, þetta er allt skólakerfinu að kenna og hann á bara að sjá um að ala upp villingana
En makalaust hvað allir ofsækja þig mikið Tigra, krakkar að klípa í rassinn á þér og dónar að kasta í gluggann á ókristilegustu stundum. Hvað er það sem veldur, heldurðu?
Þetta "plott" sem þú lýsir var reyndar framkvæmt fyrir 5 árum eða svo...
Man einhver eftir 2 Dönum sem auglýstu Thule í nokkrar vikur, og "ekkert" í heilt ár á eftir?
Gott og vel Tígra, en ég fæ ekki séð að það sé á könnu umferðarstofu að laga munnsöfnuð krakka og ekki virðist það vera boðskapur auglýsinganna.
Steinríkur: svo voru snilldar auglýsingar þar sem þeir sátu bara eftir bjórauglýsingabannið.. og sögðu ekkert!
Isak: Ég hugsa að tilvera mín, sem eina tígrisdýrið á íslandi, gæti verið orsakavaldur hér.
Lómagnúpur: þar er ég reyndar sammála þér.. auk þess sem að krakkarnir heyra munnsöfnuðinn þá bara í útvarpinu í staðinn, meðan þeir eru að senda út þessar auglýsingar.
"Þegar svona litlir guttar koma hlaupandi og annað hvort klípa mig í rassinn eða frussa upp úr sér ógeðslegheitunum, þá er komið nóg!"
*klíp*