Nú fer alveg að verða fullrætt um mál Auðuns með einu enni.
Ég komst að því að hann er líklegast fimm ára krakki í líkama fullorðins manns. Viðtalið sem spilað var í fréttum Ríkisútvarpsins var þess eðlis að henn varð tvísaga um flest. Og sem dæmi um það af hverju ég held að hann sé fimm ára krakki þá átti ég samtal við 5 ára dóttur mína:
Ívar: Hvað voruð þið systur eiginlega að gera?!?
Díva: Ég gerði sko ekkert
Ívar: Nú? En afhverju ertu með þetta í höndunum?
Díva: ja... sko... ég gerði ekkert mikið sko...
Ívar: Þú gerðir eitthvað?
Díva: já...
Ívar: Af hverju?
Díva: bara...
Ívar: en af hverju sagðistu áðan ekki hafa gert neitt?
Díva: æææ... pabbi...étla koma og knúsa þig...
Og auðvitað bráðnar hver faðir við svona orð... en Auðun Georg klikkaði á því í viðtalinu og ef hann hefði sagt við fréttamanninn að hann vildi knúsa hann þá væri málið sennilega leyst.
Ekki svo galinn samanburður. Spurningin er hvort Ingimar Karl Helgason hefði látið til leiðast & tekið Auðnuleysingjagreyinu opnum örmum ef sá síðarnefndi hefði beitt knús-úrræðinu...
Þetta er snilld Ívar. Samanburðurinn ber í senn vott um hugmyndaauðgi og snilligáfu.
Kostulegur samanburður. Vjer gerðum eitt sinn er vjer vorum líklega aðeins eldri en 5 ára svipaða tilraun til að ljúga að föður vorum. Mistókst það svo gjörsamlega að vjer munum það enn og er því stór spurning hvort vjer höfum ekki einhverja hugmynd út frá eigin reynslu um það hvað frjettastjórinn fyrrverandi var að hugsa.
Það má segja að rök hafi verið færð fyrir kenningunni með há-vísindalegum samanburði.
Ekki mun ég mótmæla þeirri fullyrðingu að Auðun Georg sé 5 ára.
Það er leikur að ljúga.
Leikur sá er mér kær.
Framhjá smámunum smjúga.
Smettan saganna hlær.
Fyrst er vaðið í viðtal
vaðið súðunum á
Svo er illt skapað umtal
ekki lát´ í þig ná.
Ljúga þarfa langa daga
Ljúga sérhverja stund.
Mannorð níða og naga.
Náhunda fara á fund.
Herra Ívar Sívertsen, hér ferð þú á kostum, snilldarfélagsrit. Þrátt fyrir að þekkja Auðun alveg þokkalega og vita að um góðan dreng er að ræða, þá var þetta metnaðarfulla stökk hans, full mikið af því góða og hann alveg eins getað verið fimm ára þegar upp var staðið.