Farsímar eiga sér oft á tíđum slćm hljóđ!
Hexia de Trix á fjöltónafarsíma. Á hverjum morgni vekur hún mig međ einhverju ótćtis dírararadírararadírararadírarara. Mađur er vart vaknađur ţegar kemur einhver áminning um hvađ ţurfi ađ gera, díradaradíradíng BLÍNG! díradaradíradíng <B>BLÍNG!</B> og ég hugsa hvern morgun ađ mig langi til ađ trođa dínamíti ţversum upp í hleđslutćkisskoruna á helvítis símanum.
Sjálfur á ég fjöltónafarsíma sem lćtur sér nćgja einfalt bíbb bíbíbíbb bíbíbíbíbíbb hvort sem um er ađ rćđa vekjara eđa dagbókaráminningu. Ekkert ekkisens díradaradúmm! Mig hefur reyndar oft langađ ađ breyta vekjarahljóđinu í eitthvađ verulega pirrandi fyrir Hexiu en minn sími hefur nćgar gáfur til ađ hreinlega bjóđa ekki upp á svoleiđis.
Ég hvet farsímaframleiđendur sem og farsíma notendur til ađ einskorđa eitthvađ diggilúdiggilei viđ símhringingar eingöngu en nota látlaust bíbb bíbíbíbb bíbíbíbíbíbíbíbíbb ţegar á ađ vekja eđa minna á hluti!
Úbbosí, ný ásjóna!
Mađur veit ekki hvađan á sig stendur veđriđ...
Annars tek ég undir ţađ sem fram kemur í félagsritinu, óţolandi diskótek dormtruflandi djöfulsins, ţessir pólýmólífónsímagemsar...
Hvađ í ósköpunum...? Hver ert ţú eiginlega? Hvert fór Ívar?
Er ekki hćgt ađ skylda fólk til ađ tilkynna ţađ í fjelaxriti ţegar ţađ skiptir svona algjörlega um útlit? Jafnvel búa til Baggalúts-útgáfu af Extrím meikóvör, ţar sem er lýst í smáatriđum hvers vegna gestapói greip til svo róttćkra ađgerđa, og hvernig breytingarnar voru framkvćmdar. [Fundar međ fulltrúum 365miđla til ađ rćđa útsendingartíma]
[Setur upp fílusvip]
Mér finnst ţetta ekki skemmtilegt... nú er Ívar orđinn metró og ţá er fokiđ í flest skjól karlmennskunnar.