Helvítis jakkafataveiðimenn!
Ég fór í sakleysi mínu í verslunarmiðstöðina Fjörð í Hafnarfirði í dag. Þar rak ég augun í þrjá unga menn sem allir voru jakkafataklæddir, með neðstu töluna fráhneppta og bindið lafandi þar niður undan. Þeir gengu að öllum og spurðu hvort búið væri að ganga frá séreignarlífeyrisskuldbindingagreiðslupakkaeinhverju og reyndu svo að fá fólk í viðskipti við sig. Ég gekk nokkrum sinnum fram hjá og blessunarlega losnaði ég við þá þar til einu sinni þegar ég var að flýta mér (og það var í eina skiptið sem ég var að flýta mér) þá kom einn af þessum jakkafatasmábörnum að mér og spurði hvort ég kynnt mér eitthvað tengt þessu séreignarlífeyrisskuldbindingagreiðslupakkaeinhverju og ég sagðist hafa kynnt mér pirring fólks sem er ráðist á saklaust á göngum verslunarmiðstöðva. Hann gafst ekki upp og spurði hvort ég væri búin að ganga frá þessu séreignarlífeyrisskuldbindingagreiðslupakkaeinhverju og ég gargaði fúll JÁ! Ég get svarið það að eins friðsæll og ég er þá var ég að því kominn að reka þessum jakkafatasmábarnaaumingja einn duglegan á gúmmorenn... eða eins og við segjum hér á Íslandi þá var ég við það að heilsa honum að sjómannasið!
Þeir læddust upp að mér í hagkaup um daginn helvískir og gerðu mér svo bilt við að ég öskraði á einn þeirra.
Ég held þeir séu útsendarar hins illa þessir menn.
Það á enginn að ganga í jakkafötum utan stórhátíðisdaga sértrúarsöfnuða.
"þá var ég að því kominn að reka þessum jakkafatasmábarnaaumingja einn duglegan á gúmmorenn.."
Þú ert svo ágætur Ívar
Eitt ráð hefur oftast virkað vel hjá mér í þessari stöðu. Það líka óvenju skemmtilegt. Ég þykist hlusta örskamma stund en spyr svo skyndilega hvar fyrirtækið sé til húsa. Aha eruð þið þá hjá Securitas með gæslu? Á hvaða hæð er fyrirtækið? Hvað segirðu? 1. hæð. Er ekki rólegt þarna að næturlagi?
Það fer að vísu oft lengri tími í þetta en færi í að svara spurningum þeirra, en það er ótrulega gaman að sjá gerfibrosið hverfa og vandræðasvipinn se tekur við
Geri þetta einungis þegar skapið er gott. Hin aðferðin sem er mun skjótvirkari er svona.
Haltu kjafti helvítis skítseiðið þitt. Bæjarleyfið mitt er útrunnið og mig langar til að gera eitthvað geðveikt.