Bið að afsaka leirburðinn...
Hættur leynast hér og þar,
hættir oft í kvæðum.
Hættumerki mikið bar,
með hættulegum svæðum.
Hættulegt að...hætta að..nei, ég get ekki fundið fleiri þreytulega orðaleiki eftir félagsrit mitt "Nokkrir hættir".
Hafðu þriðju línuna „Hættumerki hátt sé bar,“ og þá hættir vísan alveg að vera leirburður.
[Skálar]
Konseptið er óneitanlega svipað því í félagsriti mínu sem bar einnig titilinn "Hættur!!!".
[Guðnastíll]
Nú fer að vora. Þá leysir snjóa og maður hættir sér ekki út á hálan ís lengur.
Sætt, fætt, blætt, gætt, klætt, ætt, bætt,brætt, hrætt,frætt,stætt,tætt, grætt og ég er hætt.
Ég biðst velvirðingar, og skal fækka upphrópunarmerkjunum, gerði mér ekki grein fyrir þessu.