Þú finnur munninn. Það er ekki spurning.
Ath. Miðað er við að vera ölvaður sjálfur.
Ég hef það alveg á kristaltæru núna að það er mun hagstæðara að kyssa ölvað kvenfólk, miklu hagstæðara en óölvað. Á mjög löngu tímabili hef ég nefnilega prufað bæði, dömu sem er edrú, ölvuð og mökkölvuð. Að kyssa óölvaða dömu er svo sem ágætt en ekkert frábært, stundum reyna þær að vanda sig svo mikið að þær verða hálf klaufalegar fyrir vikið. En að kyssa ölvaða dömu er draumur. Bragðið er yfirleitt afskaplega gott, nema þær hafi verið að drekka ódýrt rauðvín eða Campari. Ekki er það nú slor ef þær hafa verið að drekka Opal skot, mér finnst það nefnilega svo gott að ég tali nú ekki um gott whiskey, hellst Írskt. En aðal bónusinn er ef maður nær í leiðinni að fanga áfengisgufur, það getur nefnilega viðhaldið ölvun ögn. Þá getur maður líka notið kossins aðeins lengur án þess að fara á barinn.
En alla veganna er morgunljóst, og þá meina ég fram á rauðamorgun að það er himinn og haf þarna á milli. Ég vill helst ölvað héðan af!
Amen.
Ég einmitt vill hafa það þannig líka. Þeas, að daman sem ég er að skemta mér með sé á svipuðu róli og ég í sukkinu.
[Veltir fyrir sér hvort trufla eigi drykkjuna með kossum]
.
.
[Sér ekki ástæðu til þess í ljósi pistilsins nema allt áfengi sé búið]
Skál!
Skál !
[Kemur með hundruð glasa af fagurbláum drykk og setur upp skilti er bannar aðgang karlkyns Bagglýtinga að þeim (þ.e. glösunum)]
Það jafnast án efa ekkert á við að kyssa konu sem er nýbúin að drekka gulan ananasdjús.
Gaman að þessu. Er annars ananasdjús fáanlegur í fleiri litum en gulum?
Hvaða kossaflens er þetta eiginlega hérna hist og herju? Vitið þið ekki að viðurstyggilegir sjúkdómar smitast með kossum? Össs...
Það verður að taka í taumana áður en illa fer!
Úr leiðarvísi ástarlífsins II fyrir ungar stúlkur:
Oft sést trúlofað fólk kveðjast á kvöldin hér og hvar í portum og skúmaskotum í kringum húsin. Það á ekki að eiga sér stað. Fólk tekur eftir því og finst það grunsamt og slúðursögur komast á kreik. Það er engin minkun fyrir trúlofað fólk að kveðjast með kossi við húsdyrnar. Það er miklu kurteisara en pukur að húsabaki.