— GESTAPÓ —
Í uppáhaldi:
Félagsrit:
albin
Heiðursgestur og  skriffinnur.
Pistlingur - 1/12/05
Litið hálfhring um öxl

Árið er liðið í aldana skaut og aldrei það kemur til baka.

Það er ekki óalgeng að litið sé til baka við tíma mót sem þessi og árið jafn vel gert upp.
Í heildina litið er ég bara nokku ánægður með mitt ár. Ég hef síðustu 2 ár sett mér markmið, skrifað niður c.a. 10 atriði með það fyrir augum að bæta mitt líf á einvhern hátt.
Flest á listanum gengur eftir að hluta til eða að fullu, og sumt bíður betri tíma. Þetta er eiginlega eins og verklisti, nema að aðal málið er bara að vera meðvitaður um hvert skal stefnt. Hingað til hefur verið efst á lista hjá mér að bæta fjárhaginn með því að koma öllu í skil, borga minni dráttavexti og jafnvel reyna að greiða niður skuldir. Húsnæðismál hef ég líka haft ofarlega á blaði. Ég hef frá þvi ég sleit síðustu sambúð búið í misgóðu leiguhúsnæði, en alltaf í litlu og smátt og smátt kræki ég mér í hentugra og stærra pláss. Smátt og smátt. Ó, var búinn að segja það.
En það er eitt sem aldrei hefur ratað á listan. Sem er miður. Og að það er að rækta betur vinabönd.
Nýverið hefur mér gengið afar vel að særa fólk og það er afar hvimleiður ávani. Því orð eg gerðir er ei auðvelt að taka til baka.
Á þessu ári ætla ég að standa mig betur í að sleppa því að særa vini mína. Það fer EFST á listann.
Í lokin langar mig að biðla landsmenn nær og fjær, nema Geir ólafsson, fyrirgefningar ef ég hef á einhvern hátt sært þá, sérstaklega eina manneskju sem er mér afar kær sem vinur og ég hef sært.

þar til næst... hafið það sem allra best á nýju ári.

   (23 af 62)  
1/12/05 01:01

Offari

Er þetta þessi nýja Japanska hönnun?

1/12/05 01:01

krumpa

Aftur sama félagsritið ... eða nokkurn veginn? Og þetta eru sko ekki alvörubrjóst! Amk erfitt að r... í skorunni...

1/12/05 01:01

Nornin

Þetta er göfugt markmið. Hreinskilni og heiðarleiki við vini sína (sem og aðra) er mannkostur sem allir ættu að tileinka sér.
Vonandi tekst þér að ná þessu markmiði og eigðu gott ár elsku albin.

1/12/05 23:02

Tigra

Voðalega er hún eitthvað víð
[Flissar]

albin:
  • Fæðing hér: 11/8/03 11:19
  • Síðast á ferli: 16/12/23 09:55
  • Innlegg: 3545
Fræðasvið:
Sjálfmenntaður í ScrewDriver... sem er eftirlætis svaladrykkurinn, en drekk þó ekki nærri nóg af honum. Ég hef víðtæka þekkingu á skotvopnum ætluðum til verka á lengra færi sem og í návígi.
Æviágrip:
Ég hef alla tíð verið þorpari, fól og fantur.