— GESTAPÓ —
Í uppáhaldi:
Félagsrit:
albin
Heiðursgestur og  skriffinnur.
Pistlingur - 10/12/04
Auðlindir þverra

Auðlindir jarðar eru notaðar eins og þær aldrei þrjóti. Þar til að við Íslendigar VÖKNUM og nýtum raforkuna frekar í að þróa vetnisframleiðslu heldur en í álframleiðslu, og skipum okkur í fremstu raðir í nýtingu vetnisbifreiða þarf að spara eldsneyti í heiminum.
Einkabíllinn er orkufrekur og mengandi fyrirbæri og notkun hans fer vaxandi í heiminum.

Í Norðurameríku einni mætti spara ógrynni af eldsneyti á bifreiðar með því einu að setja kanann í megrun.

   (29 af 62)  
10/12/04 03:02

feministi

Ég sem var að ákveða að kaupa mér bíl, nú fæ ég móral.

10/12/04 03:02

Vladimir Fuckov

Þá stelið þjer bara í staðinn bíl. Það er líka miklu ódýrara.

10/12/04 03:02

Skabbi skrumari

[reynir að æsa upp albin]... Þetta er alrangt hjá þér...

10/12/04 03:02

Skabbi skrumari

[sér að það gengur ekki]... sammála þér albin... Salút...

10/12/04 03:02

Skabbi skrumari

[reynir aftur] ... rökleysa, algjör rökleysa...

10/12/04 03:02

albin

Skál Skabbi skál [æsist allur]

10/12/04 03:02

Skabbi skrumari

[gefst upp] ... skál albin...

10/12/04 03:02

Ísdrottningin

Þið eruð alltaf jafnmiklar dúllur

10/12/04 04:01

Sundlaugur Vatne

"Dúllur" feginn er ég að taka ekki þátt í þessum umræðum.

10/12/04 04:01

Texi Everto

Þetta er auðvitað hárrétt - hér í Reykjavík á að breyta öllum bílskúrum í hesthús og skikka alla vinnustaði til að vera með hesthús líka. Ég fer alltaf á hestbaki í vinnuna - það er brilljant.

10/12/04 04:01

albin

En má ég labba í vinnuna?

10/12/04 04:01

Tigra

Ísland er tilvalið tilraunaland fyrir vetnisbíla.
Eyja, ekki með of mörgum íbúum.

10/12/04 04:02

Nermal

Vetnisbílar, blendingsbílar og rafmagnsbílar eru dæmi um orkusparandi ökutæki, svo er búið að hanna bíl sem gengur fyrir lofti. Það er lúxus að geta bara blásið bílinn upp ef maður verður orkulaus.

10/12/04 04:02

Sundlaugur Vatne

Svo með hækkandi yfirborði sjávar getum bara farið ferða okkar syndandi. Það væri frábært!

albin:
  • Fæðing hér: 11/8/03 11:19
  • Síðast á ferli: 16/12/23 09:55
  • Innlegg: 3545
Fræðasvið:
Sjálfmenntaður í ScrewDriver... sem er eftirlætis svaladrykkurinn, en drekk þó ekki nærri nóg af honum. Ég hef víðtæka þekkingu á skotvopnum ætluðum til verka á lengra færi sem og í návígi.
Æviágrip:
Ég hef alla tíð verið þorpari, fól og fantur.