Mikið rosalega var þetta slöpp helgi
Ég er algerlega ósammála Skabba! (Flest)Allir fóru úr bænum nema undirritaður, og sá ég þá fram á það að eyða henni á gestapóinu. En allt kom fyrir ekki, greinilega margir Bagglýtingar á útihátíðum líka.
Jæja, þá plata ég fólk til að leigja með mér spólu; American Splendor. Hún reyndist vera núll fyndin og reyndar bara niðurdrepandi.
En jæja, þá var náttúrulega bara innipúkahátíðin málið. En enginn hafði áhuga á að koma með svo ég nennti ekki.
Guð hvað ég nenni ekki að vera aftur heima á æsta ári!