Fæddur um miðbik kaldastríðsins, óx úr grasi þess fullviss að þetta færi allt á endanum til fjandans. Gleypti heilu bókabílana bara til að þurfa ekki að taka þátt í hringavitleysunni. Ástundaði hrekki ýmsa og annan ólifnað með annari hendinni um nokkurt skeið. Hef síðan róast ögn en reyni þó af fremsta megni að forðast kassana á Lækjarbakka, enda þess fullviss að ég sé hátt yfir vistmenn þeirra hafin.