— GESTAPÓ —
SlipknotFan13
Nýgræðingur.
Gagnrýni - 1/12/03
Hérumbil Ólíft (Life or Something Like it)

Það hlýtur að teljast til þægindarauka fyrir pródúsént að geta smellt sosum eins og einni kynbombu í kvikstykkið sitt og vera þá viss um að raka inn milljónir á milljónir ofan, sama hvaða efni er matreitt ofan í þespíuna. <br />

Angelína Jolie er einmitt ein slík, og þykir jafn fögur og faðir hennar er ófríður.

Herumbil Ólíft fjallar um fréttakvensnift með narsissussarkomplexa og sérkennilega þörf hennar til að líkjast kanarífuglum um fengitímann. Á fréttaveiðum með órökuðum, skítugum tall-dark-místeríúss kvikmyndatökumanninum sínum rekst hún á spámann. Meira man ég ekki. Þráðurinn í þessari myndarómynd var þynnri en handleggir barnanna í Biafra og frekar auðveldlega misstur.
Hláturgildi myndarinnar var ekkert og ber að varast þessa mynd eins og pestina.
Sprengingar voru engar, byssur aðeins ein.

   (13 af 13)  
SlipknotFan13:
  • Fæðing hér: 3/1/04 22:22
  • Síðast á ferli: 23/12/22 23:23
  • Innlegg: 1
Eðli:
Æm djöst a normal gæ hú læks Pína Kóladas and getting köht in þe rein...
Fræðasvið:
Númetalískst spjátrungspopp og tíska unglingsstúlkna á ofanverðri 21. öld.
Æviágrip:
Ungur fæddist, ekki látinn enn.