Þar sem liðið er ár síðan mitt síðasta innlegg í dagbókina, hef ég ákveðið að halda upp á það með öðru innleggi mínu.
Ætla þó lítið að minnast á þessa háttsettu heimavarnarplebba og þeirra mörgþúsund innlegg í þetta skiptið.
Já, jólabúningur einbúans er þokkafullur eins og albatros á flugi, svo ekki verði meira sagt.
Minnast lítið á háttsetta heimavarnarplebba ?! Oss finnst nú hlutfallslega mikið á þá minnst, seinni helmingur félagsritsins fjallar alfarið um þá !
Hefði ekki verið við hæfi að koma með þriðja félagsritið á tveggja ára afmælinu?
Eða kannski á tveggja og hálfs árs rafmælinu ? Annars er þetta að verða fínasti laumupúkaþráður. Skál ! [Sýpur á fagurbláum drykk]
Hverjir eru þessir þeir? Ég man ekkert hvað ég var að pæla... afsakið, hugsa.
Langt er síðan hjer hefur verið laumupúkast. Skál ! [Býst hálft í hvoru við að þurfa að bíða nokkuð lengi eftir viðbrögðum hjer]